Fyrstu myndirnar af vatnaveröldinni Evrópu í tuttugu ár Kjartan Kjartansson skrifar 30. september 2022 11:24 Mynd Júnó af Evrópu sem var tekin 29. september 2022. NASA/JPL-Caltech/SWRI/MSSS Könnunarfarið Júnó er byrjað að senda myndir frá nærflugi sínu hjá ístunglinu Evrópu við Júpíter. Myndirnar eru þær fyrstu af tunglinu frá því að Galíleó flaug þar fram hjá fyrir 22 árum. Talið er að haf fljótandi vatns sé að finna undir ísilögðu yfirborði Evrópu þar sem líf gæti mögulega þrifist.
Þegar Júnó flaug sem næst Evrópu klukkan 9:36 að íslenskum tíma í gærmorgun var geimfarið í um 352 kílómetra hæð yfir yfirborðinu. Þetta var aðeins í þriðja skipti sem geimfar hefur flogið í innan við 500 kílómetra fjarlægð frá þessu sjötta stærsta tungli sólkerfisins og það næsta sem nokkurt geimfar hefur komist frá því að Galíleó flaug fram hjá í 351 kílómetra fjarlægð í janúar árið 2000. Fyrsta myndin úr nærfluginu sýnir hluta af yfirborði Evrópu norðan við miðbaug tunglsins. Þar má sjá glöggt sprungur, hryggi og leifar af loftsteinagígum. Myndir Júnó verða þær skörpustu sem til eru af Evrópu, að því er segir í tilkynningu á vef bandarísku geimvísindastofnunarinnar NASA. Megintilgangur framhjáflugsins, sem stóð aðeins yfir í um tvær klukkustundir á meðan Júnó þeyttist fram hjá á 23,6 kílómetra hraða á sekúndu, var þó ekki að taka snotrar myndir af Evrópu. Geimfarið gerði aragrúa athugana á ísskorpunni og samsetningu hennar, innra byrði tunglsins, jónahvolfi þess og gagnverkun þess við segulsvið Júpíters. This is the surface of Jupiter s moon Europa, as seen today by our #JunoMission spacecraft from a distance of about 219 miles (352 kilometers). Click to see the full view! It shows a region near the moon s equator called Annwn Regio. Learn more: https://t.co/0v96Hbw04U pic.twitter.com/OZhO5B4GW4— NASA Solar System (@NASASolarSystem) September 29, 2022 Reyna að finna hvar vatn gæti verið nálægt yfirborði Evrópa, fjórða stærsta tungl Júpíters og eitt Galíleótunglanna svonefndu, þykir einn mest spennandi hnöttur sólkerfisins. Talið er að undir ísskorpunni sé að finna víðáttumikið haf fljótandi vatns. Sterkir flóðkraftar Júpíters á innyfli Evrópu eru taldir mynda nógu mikinn hita til þess að vatn geti verið á fljótandi formi þrátt fyrir annars naprar aðstæður í ytra sólkerfinu. Fljótandi vatn er talin grundvallarforsenda lífs. Vaxandi þekking manna á lífverum við neðansjávarstrýtur á hafsbotni á jörðinni þar sem sólarljóss nýtur ekki við kveikti þá hugmynd í kolli vísindamanna að á Evrópu gæti líf mögulega hafa kviknað við sambærilegar aðstæður. Gögnin sem Júnó safnaði í gær eiga að hjálpa vísindamönnum að átta sig á hvar fljótandi vatn gæti verið að finna í grunnum hólfum undir yfirborðinu. Tvö ár eru nú þar til bandaríska geimvísindastofnunin NASA ætlar að skjóta á loft Clipper-geimfarinu sem á að heimsækja Evrópu árið 2030. Þar á það að rannsaka lofthjúp Evrópu, yfirborð hennar og innviði. Meginmarkmið leiðangursins er að rannsaka lífvænleika tunglsins og afla frekari upplýsinga um neðanjarðarhafið, hversu þykk ísskorpan er og leita að vatnsstrókum sem gætu staðið upp af yfirborðinu líkt og goshverir. Íslenskur áhugamaður búinn að vinna fyrstu myndirnar Myndir frá svonefndri JunoCam-myndavél geimfarins eru birtar jafnóðum og þær berast á vefsíðu leiðangursins en tilgangurinn með myndavélinni er fyrst og fremst að vekja athygli almennings á honum. Björn Jónsson, tölvunarfræðingur og áhugamaður um vinnslu á myndum af hnöttum úr sólkerfinu, birti þegar í gær bráðabirgðaútgáfu sína af einni af myndum Juno. Hann telur að á henni sjáist Evrópu í því sem næst rauverulegum lit sínum. A very early and preliminary version of Europa image PJ45_1 obtained by @NASAJuno earlier today (Sept 29, 2022). This shouldn't be very far from Europa's true color; I expect to improve the color later with more careful processing though. North is up. pic.twitter.com/WEDV7UDsmS— Björn Jónsson (@bjorn_jons) September 29, 2022 Björn á meðal annars heiðurinn af því sem er talið nákvæmasta kortið af yfirborði Evrópu. Til þess notaði hann myndir frá Voyager 2 og Galíeó.
Geimurinn Vísindi Júpíter Tengdar fréttir Vatnsgos á Evrópu vekur vonir um líf undir ísnum Greining á rúmlega tuttugu ára gömlum gögnum bendir til þess að vatnsstrókar stígi upp frá yfirborði ístungls Júpíters. 14. maí 2018 16:45 Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira
Vatnsgos á Evrópu vekur vonir um líf undir ísnum Greining á rúmlega tuttugu ára gömlum gögnum bendir til þess að vatnsstrókar stígi upp frá yfirborði ístungls Júpíters. 14. maí 2018 16:45