Lífið

Birti mynd af sér með fyrrverandi

Elísabet Hanna skrifar
Irina og Bradley voru saman á árunum 2015 til 2019 og eiga eina fimm ára dóttur saman.
Irina og Bradley voru saman á árunum 2015 til 2019 og eiga eina fimm ára dóttur saman. Skjáskot/Instagram

Súpermódelið Irina Shayk birti mynd af sér með leikaranum Bradley Cooper en hann er fyrrverandi kærasti hennar og barnsfaðir. Fyrrum parið virðist vera að hafa það notalegt í sólinni og skrifaði hún ekkert undir myndirnar en lét lyndistáknið rautt hjarta fylgja með. 

Myndbirtingin vakti upp margar spurningar meðal netverja sem velta því fyrir sér hvort ástin sé að blossa upp hjá þeim á ný. Irina birti þó ekki aðeins myndir af sér með Bradley heldur einnig með svínum á ströndinni og öðrum sjávardýrum. Mynd af henni í sandinum, sem var búið að teikna hjarta í, rataði einnig á miðilinn.

Eiga í góðu sambandi

Saman eiga þau fimm ára dótturina Leu De Seine Shayk Cooper og hafa í gegnum tíðina sést saman á ýmsum viðburðum og virðist allt leika í lyndi. Irina mætti meðal annars á frumsýningu Nightmare Alley sem Bradley var að leika í og sagði hann í viðtali að stuðningur hennar væri honum kær. 

Síðast í júlí bárust fréttir af því að Huma Abedin, sem starfar í stjórnmálum, væri nýja ástin í lífi Bradley. Þar kom fram að þau væru að taka hlutunum rólega eftir að sameiginlega vinkona þeirra, Anna Wintour, kynnti þau í vor. 


Tengdar fréttir

Kanye West eyddi afmælinu með Irinu Shayk

Kanye West hélt upp á 44 ára afmælið sitt á þriðjudag ásamt hópi fólks í Frakklandi. Með honum var rússneska fyrirsætan Irena Shayk. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×