Real Madrid er besta lið Evrópu

Karim Benzema lyfti ofurbikarnum eftir leikslok.
Karim Benzema lyfti ofurbikarnum eftir leikslok. Getty Images

Real Madrid er besta lið Evrópu í dag en liðið vann sinn fimmta Ofurbikar UEFA í kvöld þegar Real vann þægilegan 2-0 sigur á Eintracht Frankfurt á Ólympíuvellinum í Helsinki.

Leikmenn Frankfurt voru þó ekkert á því að láta valta yfir sig og byrjuðu leikinn vel. Daichi Kamada, leikmaður Frankfurt, átti fyrsta hættulega marktækifæri leiksins en Thibaut Courtois í marki Real sá við honum. 

Courtois kom svo aftur til bjargar stuttu síðar þegar hann varði glæsilega frá Ansgat Knauff en á milli markvarsla Courtois björguðu varnarmenn Frankfurt á marklínu eftir fína tilraun frá Vinicius Junior.

Það var svo David Alaba sem kom Real Madrid yfir á 37. mínútu þegar hann stýrði knettinum í netið af stuttu færi fyrir opnu marki eftir skallatennis milli Karim Benzema og Casemiro.

Benzema fagnar marki sínu í kvöld.Getty Images

Thibaut Courtois var aftur vel á verði þegar hann varði aðra marktilraun frá Knauff á 64. mínútu og það var kannski eins gott fyrir Real því markahrókurinn Benzema tvöfaldaði forystu Real Madrid innan við mínútu síðar þegar hann stýrði fyrirgjöf Vinicius í netið. 

Benzema átti þá innanfótarskot við enda vítateigs Frankfurt sem fór nokkurn veginn beint á Kevin Trapp í marki Frankfurt en honum tókst þó ekki að verja marktilraun Benzema sem fagnaði fyrsta marki sínu á leiktímabilinu.

Meira markvert gerðist ekki, lokatölur 2-0 og leikmenn Real Madrid lyftu því ofurbikarnum skömmu eftir leikslok.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira