Fótbolti

Endurmeta hvort áfram verði kropið á hné

Valur Páll Eiríksson skrifar
Zaha kraup á hné til stuðnings Black Lives Matter-hreyfingunni í rúmt hálft ár en hætti því í febrúar í fyrra.
Zaha kraup á hné til stuðnings Black Lives Matter-hreyfingunni í rúmt hálft ár en hætti því í febrúar í fyrra. Tim Keeton/Pool via Getty Images

Fyrirliðar félaga í ensku úrvalsdeildinni hafa fundað um hvaða aðferðir séu best til fallnar að berjast gegn kynþáttahatri á komandi leiktíð. Ekki hefur náðst niðurstaða í málið.

Eftir að George Floyd var myrtur af lögreglumanninum Derek Chauvin í Minneapolis í Bandaríkjunum í maí 2020 hafa leikmenn í ensku úrvalsdeildinni tekið upp hefð vestanhafs að krjúpa á hné áður en leikir í deildinni hefjast. Þetta er gert til að sýna Black Lives Matter-hreyfingunni stuðning og sýna samstöðu gegn kynþáttahatri.

Frá því að sú hefð hófst hafa þó einhverjir leikmenn hætt að taka þátt í athæfinu, þar á meðal Wilfried Zaha, leikmaður Crystal Palace, sem er sjálfur dökkur á hörund. Hann sagði í febrúar 2021 að „sem stendur skiptir það ekki máli hvort við krjúpum eða stöndum, margir okkar þurfa enn að þola kynþáttaníð“.

Á svipuðum tíma hættu nokkur félög í ensku B-deildinni einnig að krjúpa á hné, þar á meðal Derby County, Brentford, Bournemouth og Queens Park Rangers.

Því er velt upp hvaða áhrif látbragðið hefur, og hvort að áhrifamáttur þess hafi farið dvínandi eftir því sem tíminn hefur liðið. Leikmenn geri þetta ef til vill af skyldurækni fremur en að þeir séu drifnir áfram af raunverulegum vilja til breytinga.

Þá getur verið að þeir séu drifnir af þeim vilja en þetta sé einfaldlega ekki leið sem skili árangri, líkt og Zaha benti á.

Fyrirliðar í deildinni hafa þegar fundað einu sinni um málið þar sem engin niðurstaða fékkst. Búist er við að málið verði komið á hreint áður en Arsenal mætir Crystal Palace í upphafsleik tímabilsins á föstudagskvöldið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×