„Aðal tilgangurinn er að vekja landann á tilurð áhugaleikfélaga og veita þekkingu á starfsemi þess svo allir geti fundið sína leið. Í þáttunum fáum við til okkar hina ýmsu gesti, þá bæði fólk sem er á fullu í áhugaleiklistinni og þekktu fólki sem á rætur sínar að rekja í áhugaleikfélögin,“ segja Lilja og Viktor.
Mikilvægur hluti af samfélaginu
Tilurð hlaðvarpsins kom út frá því að áhugaleikfélög eiga erfitt uppdráttar um þessar mundir.
„Við erum að heyra að áhugaleikfélögin séu að berjast hvarvetna fyrir tilverurétti sínum. Sum félagana eru þegar húsnæðislaus, til dæmis Leikfélag Hafnarfjarðar, önnur fá engan húsnæðisstyrk frá bæjarfélagi sínu, samanber Leikfélag Kópavogs, Hugleikur og fleiri og önnur eru að missa húsnæði sitt, til dæmis Leikfélag Mosfellsbæjar. Sum þessara félaga hafa verið starfrækt hátt í 100 ár og verið mikilvægur hluti af samfélagi bæði sveitarfélaga og landans.“
Viðmælendur lýst þessu sem lífsbjörg
Lilja og Viktor segja engum blöðum um það að fletta að áhugaleikhúsin hafi uppbyggileg og mikilvæg áhrif á líðan fólks.
„Margir af þeim sem við höfum þegar tekið viðtöl við hafa lýst þessu sem lífsbjörg.
Margir hafa kljást við þunglyndi, kvíðaröskun og ýmis konar geðræna kvilla, en standa fastir á því að það hafi verið þeim lífsbjörg að fá að koma inn í þessi mikilvægu félög.
„Þetta er lýðheilsumál“ sagði einn gesturinn okkar, þar sem jú mörg okkar eiga enga samleið í íþróttum eða íþróttatengdu félagsstarfi.“
Sporna við þekkingarskorti
Þau segja mikilvægt að áhugaleikfélögin fái að taka rými.
„Þetta starf áhugaleikfélaga á að eiga sinn stað hjá sveitarstjórnum og sveitarfélögum. Þetta skiptir sköpum fyrir öll svið leiklistarinnar, þar sem atvinnuleikurum, atvinnuleikstjórum, atvinnutónlistarfólki og atvinnutæknifólki er veitt vinna við þetta líka.
Tilvera þessa áhugaleikfélaga ræðst á því að við spornum við þeim þekkingarskorti sem virðist einkenna þetta svið. Og ætlum við að gera það með þessu hlaðvarpi.“

Gróska af sköpun
Í einum af fyrstu þáttum hlaðvarpsins spjölluðu þau við stjórnarmenn Leikfélags Keflavíkur, sem eru höfundar verksins Fyrsti Kossinn, frumsamins leikrits með tónlist eftir Rúnar Júlíusson.
„Þetta verk var valið eitt af áhugaverðustu leiksýningum áhugaleikfélaga af nefnd Þjóðleikhússins sem gert er á hverju ári.
Sem sýnir hversu mikil gróska af sköpun getur átt sér stað á stöðum eins og í Keflavík,“
segja þau að lokum.
Tveir þættir eru nú þegar komnir út og allir þættir Samlesturs verða aðgengilegir á pardus.is/samlestur.