Innlent

Horfa þurfi á hóp­upp­sögn Eflingar í stærra sam­hengi

Eiður Þór Árnason skrifar
Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR.
Ragnar Þór Ingólfsson er formaður VR. Vísir/Egill

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður stéttarfélagsins VR, segir að hópuppsögn starfsmanna Eflingar hafi komið sér á óvart og slíkar aðgerðir séu ávallt áhyggjuefni. Þó beri að horfa á ákvörðunina í samhengi við þau langvarandi átök sem hafi ríkt innan Eflingar.

Hátt í tíu starfsmenn á skrifstofu Eflingar eru skráðir í VR og segir Ragnar að félagið hafi lagt áherslu á gæta hagsmuna þeirra og farið sé eftir öllum lögum og reglum.

Aðspurður hvort hann telji hópuppsögn vera ráðlagt skref til að ná yfirlýstum markmiðum formanns Eflingar með skipulagsbreytingunum segist Ragnar ekki geta svarað til um það.

„Það eina sem ég get sagt í þessu er að það hefur náttúrlega ýmislegt gengið á, það hafa verið gríðarleg átök um félagið og skrifstofuna sem endaði í risastóru uppgjöri í kosningunum sem kláruðust nýverið með sigri Sólveigar og hennar lista.

Það var alveg viðbúið að það yrðu einhverjar breytingar í kjölfarið. Ég held að það hljóti allir að sjá að málinu var ekki lokið af þeirra hálfu á þeim tímapunkti. Þá tóku félagsmenn upplýsta ákvörðun um framhaldið.“

Valið að íhlutast ekki í deilum innan Eflingar

Ragnar segist ekki vera í neinni aðstöðu til að dæma um það hvaða leið hafi verið best að fara í þessum efnum. Þá litlu innsýn sem hann hafi inn í átökin innan félagsins hafi hann fengið í gegnum fjölmiðla og umræðu á samfélagsmiðlum.

„Svo ég hef engar forsendur til að tjá mig um þessar aðferðir eða það sem gengið hefur á.“

Ragnar bætir við að stjórn VR og hann sjálfur hafi kosið að íhlutast ekki í málefnum Eflingar.

„Þetta mál eins og það er sett fram núna er náttúrulega alfarið á ábyrgð núverandi meirihluta stjórnar Eflingar og nýkjörins formanns og þau þurfa náttúrulega fyrst og fremst að svara fyrir það og hafa gert það í fjölmiðlum en okkar aðkoma er fyrst og fremst að hlúa að félagsmönnum sem starfa á skrifstofunni.“

Finnst þér þessi hópuppsögn vera áhyggjuefni að einhverju leyti?

„Uppsagnir í hvaða formi sem þær eru alltaf áhyggjuefni og eru bara ömurlega fyrir þá sem lenda í því að vera sagt upp störfum, það er í hlutarins eðli. Það er í raun og veru eina svarið sem ég get sagt,“ segir Ragnar.

Hann bætir við að ákvörðun meirihluta stjórnar Eflingar hafi vissulega komið sér á óvart, líkt og flestum.

„En að sama skapi held ég að fólk verði að skoða þetta samt í stærra samhengi vegna þess að það hefur ýmislegt gengið þarna á og ef ég ætla að fara að hafa einhverja sérstaka skoðun á þessum átökum almennt þá tel ég mig þurfa að hafa mjög sterkar skoðanir á þeim öllum. Ég hef bara kosið að gera það ekki, við erum sjálf með stórt stéttarfélag og mörg verkefni innan okkar raða og við höfum kosið að einbeita okkur bara að okkar félagi og því sem við erum að gera,“ segir Ragnar.

Svo þú vilt ekki fordæma þessa hópuppsögn?

„Eins og ég sagði, ég vil forðast það að blanda mér inn í þau átök sem eiga sér langan aðdraganda og enda í miklu uppgjöri í kringum síðustu kosningar. Uppsagnir eru alltaf ömurlegar, alveg sama hvernig á það er litið og alltaf versta niðurstaða sem ég get hugsað mér, en þegar öllu er á botninn hvolft þá verður bara að skoða þetta mál allt saman í mun stærra samhengi.“

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, hefur sagt að ástæðurnar fyrir uppsögnunum séu innleiðing jafnlaunavottunar, nýrra starfslýsinga, hæfniviðmiða og breytinga á launakerfi.Vísir/Egill

Vonar að þetta hafi ekki neikvæð áhrif á samningstöðu þeirra í haust

Ragnar segir að hann óski þess fyrst og fremst að verkalýðshreyfingin komi standandi út úr þessum átökum og fari sameinuð inn í komandi kjaraviðræður.

„Það hlýtur að vera algjört forgangsverkefni hjá okkur sem erum í forystu í verkalýðshreyfingunni að leita allra leiða til að komast sameinuð að borðinu í haust, af því að þetta má undir engum kringumstæðum hafa áhrif á samningsstöðu okkar og möguleika okkar á að ná fram sem bestum og mestum kjarabótum og kerfisbreytingum fyrir almenning í landinu.“

Hann segist ekki geta svarað því hvort þessi hópuppsögn sendi hættuleg skilaboð út í atvinnulífið og geri það að verkum að sumir vinnuveitendur telji sig eiga auðveldara með að réttlæta slíka aðgerð.


Tengdar fréttir

„Gífurleg afglöp“ hjá stjórn Eflingar

Fyrrverandi stjórnarmaður í Eflingu segir það gífurleg afglöp að segja upp öllu starfsfólki skrifstofunnar. Stjórn félagsins sé klofin og nú sé til umræðu að kalla saman félagsfund til að kjósa hana frá.

Vil­hjálmur tekur upp hanskann fyrir Sól­veigu

Mikil umræða hefur farið fram um hópuppsögn alls starfsfólks á skrifstofu Eflingar og hefur aðgerðin víða verið harðlega gagnrýnd. Formaður Starfsgreinasambandsins, hefur nú stigið fram og tekið upp hanskann fyrir Sólveigu Önnu Jónsdóttur, formann Eflingar, og segist treysta því að vel verði staðið að hópuppsögninni.

Segir upp öllu starfs­fólki Eflingar

Sólveig Anna Jónsdóttir, sem er nýtekin aftur við sem formaður Eflingar, lagði til á stjórnarfundi félagsins í dag að öllu starfsfólki Eflingar yrði sagt upp störfum. Tillagan var lögð fram og samþykkt af átta manna meirihluta B-lista undir forystu Sólveigar Önnu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×