Enski boltinn

Segir titlana sem Man City hafa unnið pirra ná­granna þeirra í Man Utd

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Laporte hefur verið sigursæll síðan hann gekk í raðir Man City.
Laporte hefur verið sigursæll síðan hann gekk í raðir Man City. EPA-EFE/MAGI HAROUN

Aymeric Laporte, leikmaður Manchester City, segir að sigurganga liðsins og allir þeir titlar sem félagið hefur sankað að sér á undanförnum árum fari verulega í taugarnar á nágrönnum þeirra í Man United sem hafa á sama tíma ekkert unnið.

Hinn 27 ára gamli Laporte var í ítarlegu viðtali við enska miðilinn The Guardian og ræddi meðal annars leikstíl Man City og gott gengi liðsins á undanförnum árum. 

Ásamt því að segja að ekkert lið í heiminum spili eins og City undir stjórn Pep Guardiola þá skaut miðvörðurinn einnig létt á nágranna City í Manchester-borg.

„Við höfum unnið 11 bikara á fjórum árum, það getur pirrað fólk, eins og nágranna okkar sem hafa ekki unnið neitt á sama tíma.“

Hann minntist einnig á að fótboltamenn ættu það til að segja aldrei sannleikann en það er ljóst að Laporte sat ekki á skoðunum sínum þarna.

Miðvörðurinn knái gekk í raðir Man City í janúar 2018. Síðan þá hefur félagið unnið þrjá Englandsmeistaratitla, jafn marga deildarbikartitla, einn FA bikar og einn góðgerðaskjöld. Liðið gæt bætt við þennan fjölda í vor en það er sem stendur á toppi ensku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×