Börsungar þurfa sigur í Tyrklandi | Atalanta hafði betur í fimm marka leik

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Barcelona og Galatasaray gerðu markalaust jafntefli á Spáni í kvöld.
Barcelona og Galatasaray gerðu markalaust jafntefli á Spáni í kvöld. Burak Akbulut/Anadolu Agency via Getty Images

Þrátt fyrir að hafa verið miklu meira með boltann og heilt yfir betri aðilinn í leiknum í kvöld tókst Börsungum ekki að skora gegn Galatasaray í kvöld. Liðin mætast á ný eftir slétta viku í Tyrklandi og þá ræðst hvort liðið tryggir sér sæti í átta liða úrslitum.

Fleiri mörk voru á boðstólum í leik Atalanta og Bayer Leverkusen. Charles Aranguiz kom Þjóðverjunum yfir snemma leiks áður en Ruslan Malinovsky og Luis Muriel sáu til þess að Atalanta fór með 2-1 forystu inn í hálfleikinn.

Luis Muriel skoraði annað mark sitt og þriðja mark Atalanta á 49. mínútu, en Moussa Diaby minnkaði muninn fyrir gestina eftr rúmlega klukkutíma leik, og þar við sat.

Niðurstaðan varð því 3-2 sigur Atalanta, en liðin mætast á ný að viku liðinni.

Að lokum vann skoska liðið Rangers öruggan 3-0 sigur gegn Rauðu Stjörnunni og er því í góðum málum fyrir síðari leik liðanna.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira