Menning

„Maður er alltaf að kafa dýpra og skilja betur það sem maður er að fást við“

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Listakonan Áslaug Íris Katrínar Friðjónsdóttir skapar einstaka list og notast oft við iðnaðarefni í verkin sín.
Listakonan Áslaug Íris Katrínar Friðjónsdóttir skapar einstaka list og notast oft við iðnaðarefni í verkin sín. Aðsend

Listakonan Áslaug Íris Katrínar Friðjónsdóttir opnar einkasýninguna Arfur í Gallerí Þulu í dag, frá klukkan 14:00-18:00 og stendur sýningin til 27. mars næstkomandi.

Áslaug er lærð myndlistarkona og hefur sýnt víða, bæði hér heima og erlendis. Í þessari verkaseríu fetar hún nýjar slóðir og segir sýninguna vera næsta skref í listsköpun sinni. Blaðamaður hafði samband við þessa listakonu og fékk að skyggnast örlítið inn í hennar listræna hugarheim.

Listaverk eftir Áslaugu á sýningunni Arfur.Aðsend

Hvaðan sækirðu innblástur fyrir sýningunni?

Í þessari sýningu er ég er mikið að fjalla um tíma og tengsl milli menningarheima og hvernig kynslóðirnar taka við hver af annarri eins og perlufesti einstaklinga sem teygir sig afturábak og áfram í tíma. Svipaðar hugmyndir má líka lesa úr fyrri verkum mínum.

Þessi sýning er í raun bara næsta skref í listsköpun minni og ferli en hver sýning leiðir að þeirri næstu og verkin sem ég sýni núna eru byggð á fyrri verkum mínum og hugmyndum. Þó bætist alltaf eitthvað við því maður er alltaf að kafa dýpra og skilja betur það sem maður er að fást við.

Einnig er það að gerast að verkin eru að verða meira fígúratíf en hingað til hef ég að mestu unnið með óhlutbundið myndmál.

Hver eru tengsl listaverkanna við titil sýningar?

Með titlinum Arfur er ég bæði að vísa til sameiginlegs menningararfs okkar Vesturlandabúa, til frumsköpunar mannsins og listasögu sem ég vinn með í samhengi samtímans og eigin umhverfis. En á sama tíma er ég einnig að rannsaka minn eigin persónulega arf sem teygir einmitt rætur sínar til mið-Evrópu.

Hefur sýningin verið lengi í bígerð?

Ég hef unnið að þessum verkunum í nokkra mánuði en svo eru tvö stór vatnslitaverk á sýningunni sem eru eldri, eins og tveggja ára gömul. Ég ákvað að leyfa þeim að vera með því fagurfræðilega tala þau beint inn í efnistök sýningarinnar og þá úrvinnslu sem myndgerðist í þessum nýju verkum.

Hvaða listmiðla vinnur þú helst með í þinni listsköpun?

Undanfarið hef ég mikið verið að vinna eins konar lágmyndir. Það eru málverk á steindan flöt. Ég nota oft iðnaðarefni í verk mín, steypublöndu, steina og linoleum dúka en svo notast ég við teikningu og málun, ýmis konar, samferða því.

Sýningin opnar sem segir í galleríinu Þula í dag, laugardaginn 5. mars, og mun standa til 27. mars næstkomandi. Galleríið er opið frá miðvikudegi til sunnudags frá klukkan 14:00 – 18:00.


Tengdar fréttir

Opnuðu sýninguna með stæl

Opnun sýningar myndlistakonunnar Áslaugar Írisar Katrínar Friðjónsdóttur, Bygging - skúlptúr - teikning, fór fram í A. M. Concept Space laugardaginn 23. september.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×