Liverpool liðið á efstu þrjá leikmennina á báðum topplistunum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. febrúar 2022 13:01 Sadio Mane og Mohamed Salah fagna marki hjá Liverpool á þessari leiktíð. Getty/Richard Heathcote Liverpool hefur verið á miklu flugi síðustu vikur og er nú aðeins þremur stigum á eftir toppliði Manchester City eftir 6-0 stórsigur á Leeds United í vikunni.
Mohamed Salah og Sadio Mané skoruðu báðir tvennu í þessum leik og með því komst Mané í hóp markahæstu leikmanna ensku úrvalsdeildarinnar til þessa í vetur. Liverpool á nú bæði þrjá efstu mennina á markalistanum og á stoðsendingalistanum. Mohamed Salah er langmarkahæstur og líka með flestar stoðsendingar ásamt liðsfélaga sínum Trent Alexander-Arnold. Salah hefur skorað 19 mörk og gefið 10 stoðsendingar. Hann hefur því komið með beinum hætti að 29 mörkum í 24 leikjum. View this post on Instagram A post shared by Liverpool Football Club (@liverpoolfc) Salah hefur skorað sjö mörkum meira en Diogo Jota sem er annar með tólf mörk. Jota lék ekki með í vikunni vegna meiðsla. Mané er kominn með ellefu mörk eftir tvennuna sína. Mané hoppaði þar með upp fyrir Raheem Sterling hjá Manchester City sem er nú fjórði markahæsti leikmaður deildarinnar með tíu mörk. Alexander-Arnold deilir efsta sæti stoðsendingalistans með Salah en Egyptinn komst upp að hlið hans með því að leggja upp mark á móti Leeds. Báðir bakverðir Liverpool er á topp þrjú í stoðsendingum því Andrew Robertson er þriðji með níu stoðsendingar. Robertson lagði upp eitt mark á móti Leeds. Efsti maður í stoðsendingum sem spilar ekki með Liverpool eru Jarrod Bowen hjá West Ham og Paul Pogba hjá Manchester United sem báðir hafa gefið átta stoðsendingar.
Enski boltinn Mest lesið Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Fær að mæta KR í úrslitum þrátt fyrir hnefahöggið Körfubolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Fleiri fréttir Man. City - Newcastle | Hvaða lið mætir Arsenal á Wembley? Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Mateta fer ekki til Mílanó Kvennalið Arsenal vann sér inn meira en 280 milljónir króna Szoboszlai segir að framtíð hans hjá Liverpool sé „ekki í hans höndum“ Liverpool keypti varnarmann fyrir tíu milljarða en fær hann ekki fyrr en í sumar Sjáðu sturlað mark Solanke og ótrúlegar lokamínútur á Old Trafford Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Aston Villa tapaði gegn tíu mönnum Brentford Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Sjáðu tvennuna hjá Ekitike, endurkomu Chelsea og öll mörkin úr enska í gær Ekitike með tvö á tveimur og langþráður sigur Liverpool Þreföld hálfleiksskipting og endurkoma hjá Chelsea Beto bjargaði stigi á afmælisdaginn Öruggt hjá Arsenal á Elland Road og sjö stiga forskot Sjáðu laglega afgreiðslu hins sjóðheita Barrys Sjóðheitur Dorgu frá í um tíu vikur Sjá meira