Menning

Njálssaga myndskreytt með 150 teikningum

Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar
Þórhildur, sem hefur myndskreytt Njálssögu af miklum myndarskap og fagmennsku með 150 myndum.
Þórhildur, sem hefur myndskreytt Njálssögu af miklum myndarskap og fagmennsku með 150 myndum. Magnús Hlynur Hreiðarsson

Segja má að Brennu – Njálssaga hafi öðlast nýtt líf og „lifnað“ við með hundrað og fimmtíu teikningum af vettvangi atburða í sögunni. Myndirnar verða notaðar á skólavef aðallega ætluðum framhaldsskólum með styttri texta og útskýringum á tölvutæku formi og auðlesnari máli en í frumritinu

Fljótshlíðingurinn Þórhildur Jónsdóttir frá Lambey býr í huggulegri íbúð í Grafarvogi þar sem hún er með vinnuaðstöðuna sína. Hún er mikill listamaður og flink að teikna og mála myndir.

Hér er t.d. mynd af ömmu hennar, Þórhildi Þorsteinsdóttur, sem hún gerði og hún hefur líka málað myndir af foreldrum sínum, Jóni Kristinssyni, alltaf kallaður Jóndi og Ragnhildur Sveinbjarnardóttir í Lambey. 

Ekki má gleyma systkinunum Þórhildar en hún hefur líka teiknað mynd af þeim öllum en þau eru níu talsins, öll á lífi.

Systkini Þórhildar og foreldrar hennar, allt myndir sem Þórhildur teiknaði af sinni alkunnu snilld.Magnús Hlynur Hreiðarsson

Stærsta verkefni Þórhildar í rúmlega ár hefur hins vegar verið að myndskreyta Brennu-Njálssögu fyrir nýlegan sagnavef, sem Sverrir Árnason á heiðurinn af. Hluta af myndunum hefur Þórhildur komið upp á vegg heima hjá sér til gamans.

„Sverrir kom bara að máli við mig og spurði mig hvort ég treysti mér að gera þetta og ég já bara prófaði. Þetta er bara mjög skemmtilegt og það var mjög gaman að gera þetta,“ segir Þórhildur.

Þórhildur segist hafa teiknað að meðaltali 15 myndir á mánuði. Hún þekkir Njálssögu mjög vel enda margbúin að lesa hana.

"Tekið hef ég hér hvolpa tvo, hvað skal við þá gera?“Magnús Hlynur Hreiðarsson

En hvað finnst henni um söguna?

„Bara mjög skemmtileg, það er bara mjög gaman að lesa hana. Maður getur lesið aftur og aftur, þetta eru svo margar persónur og mikið að gerast.“

Gunnar og Njáll eru uppáhalds persónur Þórhildar í bókinni enda fannst henni sérstaklega gaman að teikna þá enda miklir höfðingjar að hennar sögn.

Þórhildur segist vita að þeir framhaldsskólar, sem eru komnir með myndirnar og aðgang að þeim séu mjög ánægðir og það létti mikið á við lestur sögunnar að hafa allar myndskreyttu myndirnar með.

Finnst þér að nemendur eigi að læra um Brennu – Njálssögu?

Já, endilega, já, já, það á bara að vera skylda.“

Hér er vefurinn með myndunum hennar Þórhildar

Gunnar á Hlíðarenda eins og Þórhildur myndskreytti þessa mynd.Magnús Hlynur Hreiðarsson





Fleiri fréttir

Sjá meira


×