Bíó og sjónvarp

Dýrið komið skrefi nær tilnefningu til Óskar­sins

Eiður Þór Árnason skrifar
Naomi Rapace í kvikmyndinni Dýrið, eða Lamb eins og hún er titluð erlendis.
Naomi Rapace í kvikmyndinni Dýrið, eða Lamb eins og hún er titluð erlendis. Aðsend

Kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar er meðal fimmtán kvikmynda sem eiga möguleika á Óskarstilnefningu á næsta ári í flokki erlendra mynda.

Óskarsakademían tilkynnti þetta í dag en 92 kvikmyndir í fullri lengd komu til greina frá jafn mörgum ríkjum. Sara Nassim, annar framleiðandi Dýrsins, segir í færslu á Facebook-síðu sinni að hún sé í sjöunda himni með þessa útnefningu. 

Dýrið er markaðsett erlendis undir titlinum Lamb og var heimsfrumsýnd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðarinni í Cannes á þessu ári. Hlaut hún þar verðlaun fyrir frumlegustu kvikmyndina í Un Certain Regard keppninni.

Myndin hefur fengið góðar viðtökur víða um heim og var sýnd á 600 kvikmyndatjöldum í Bandaríkjunum í október. Aldrei áður hefur íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs.

Ala upp dularfulla veru sem eigið afkvæmi

Dýrið segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal. Þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund, hamingju sem verður þeim síðar að tortímingu.

Valdimar Jóhannsson leikstýrði myndinni og handritið skrifaði hann í samvinnu við Sjón. Myndin er framleidd af Hrönn Kristinsdóttur og Sara Nassim fyrir Go to Sheep, í samvinnu við sænska og pólska framleiðendur.

Með aðalhlutverk fer sænska leikkonan Noomi Rapace, en hún bjó á Íslandi sem barn og er þetta fyrsta aðalhlutverk hennar á íslensku. Auk Noomi fara þeir Hilmir Snær Guðnason, Björn Hlynur Haraldsson og Ingvar E. Sigurðsson með aðalhlutverk í myndinni. Stjórn kvikmyndatöku er í höndum Eli Arenson og Agnieszka Glińska sér um klippingu myndarinnar. Þórarinn Guðnason samdi tónlist myndarinnar og hljóðhönnun er í höndum Ingvars Lundberg og Björns Viktorssonar.


Tengdar fréttir

Dýrið til­nefnd til European Discovery verð­launa

Kvikmyndin Dýrið hefur verið tilnefnd til European Discovery verðlauna. Verðlaunin sem kallast Prix FIPRESCI eru hluti af Evrópsku kvikmyndaverðlaununum og eru veitt árlega til leikstjóra með sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd.

Dýrið frumsýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag

Íslenska kvikmyndin Dýrið. eða Lamb eins og hún heitir erlendis, verður sýnd á 600 tjöldum í Bandaríkjunum í dag. Aldrei áður hefur íslensk kvikmynd fengið jafn mikla almenna dreifingu vestanhafs.

Dýrið slær í gegn á Fantastic Fest í Texas

Íslenska kvikmyndin Dýrið sló í gegn á Fantastic Fest en hátíðin fór fram í Austin, Texas og lýkur á morgun. Myndin hefur hlotið lof bæði áhorfanda og gagnrýnenda. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×