Menning

Bjarni kominn aftur í Ásmundarsal

Snorri Másson skrifar
Desember er genginn í garð og árleg jólasýning er hafin í Ásmundarsal. Þar lætur fjármálaráðherra sig ekki vanta - að þessu sinni sem málverk.
Desember er genginn í garð og árleg jólasýning er hafin í Ásmundarsal. Þar lætur fjármálaráðherra sig ekki vanta - að þessu sinni sem málverk. Vísir/Vilhelm

„Svona eru jólin“ er yfirskrift sölusýningar sem opnuð var í Ásmundarsal um helgina, þar sem um 600 verk yfir 180 listamanna eru til sýnis fram að jólum.

Fréttastofa mætti á staðinn og var ekki lengi að finna sitt uppáhaldsverk, eftir Auði Ómarsdóttur myndlistarkonu. Sjón er sögu ríkari:

Skemmst er að minnast þess þegar vikið var að því í fréttatilkynningu frá lögreglu á aðfangadag í fyrra, að „háttvirtur ráðherra í ríkisstjórn Íslands“ hefði verið staddur í samkvæmi í sal í miðbæ Reykjavíkur. 

Það reyndist vera Bjarni Benediktsson, sem síðar baðst afsökunar á að hafa ekki yfirgefið rýmið þegar fólki fór að fjölga þar töluvert. Staðarhaldarar voru sektaðir fyrir brot á grímuskyldu.

Sjarmerandi og sætur

Auður Ómarsdóttir sagði í viðtali við fréttastofu að hún hafi síst verið að reyna að stríða Bjarna með málverkinu, heldur fyndist henni hann bara heillandi og með falleg augu. Hún væri í rauninni bara að vonast til þess að verkið yrði til þess að hann vissi hver hún væri.

„Hann er bara svo sjarmerandi og sætur að mig langaði bara að mála mynd af honum. Við sjáum hérna alla veröldina í augunum á honum, þennan skýrleika og öll þessi tækifæri,“ segir Auður.

Bjarni Benediktsson eins og Auður Ómarsdóttir sér hann fyrir sér, í Ásmundarsal í miðbæ Reykjavíkur.Stöð 2

Og hvað kostar það? Ja, Bjarni hefur að sögn klárlega ráð á að fjárfesta í verkinu að sögn Auðar. Fyrst stóð til að láta það kosta mánaðarlaun fjármálaráðherra, en það reyndist of há upphæð.

Auður er annars iðin við að mála svipaðar myndir og þá sem hún hefur málað af Bjarna, þannig að út frá því sjónarmiði er portrettmyndin af ráðherranum ekki nema rökrænt næsta skref í listsköpun hennar.

Jólasýning Ásmundarsalar opnaði á laugardag og verða verkin til sölu næstu vikur alveg fram á Þorláksmessu. Frá og með 17. desember er opið til átta á kvöldin en lokakvöldið til tíu.

Jólasýning Ásmundarsalar opnar laugardaginn 4. desember kl. 12:00. Hátt í 600 verk eru til sölu eftir 180 listamenn,


Tengdar fréttir

„Þetta er svona myndlistarannáll“

Í hádeginu á laugardag opnar jólasýningin „Svona eru jólin“ í Ásmundarsal. Um er að ræða sölusýningu með verkum frá hátt í 200 listamönnum.

Minnti Áslaugu á að skipta sér ekki af rannsókn málsins í símtalinu

Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu minnti dómsmálaráðherra á að skipta sér ekki af rannsókn málsins í símtali síðdegis á aðfangadag vegna dagbókarfærslu sem lögreglan skrifaði um fjármálaráðherra í Ásmundarsal á Þorláksmessu. Þetta sagði lögreglustjórinn á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis í mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×