Lífið samstarf

Upplifunin enn notalegri þegar jólaborðið er fallega skreytt

Vogue fyrir heimilið
Á borðinu má sjá diska, skálar, hnífapör, glös, könnur og blómavasa frá Bitz.
Á borðinu má sjá diska, skálar, hnífapör, glös, könnur og blómavasa frá Bitz. Vilhelm

Borðbúnaðurinn eftir danska hönnuðinn Christian Bitz nýtur mikilla vinsælda fyrir mikinn karakter og fágað yfirbragð.

Innanhússhönnuðurinn Elva Ágústsdóttir lagði á hátíðlegt jólaborð fyrir lesendur með vörum frá BITZ en BITZ línan fæst eins og hún leggur sig í Vogue fyrir heimilið.

Vilhelm

Vel dekkað borð mun alltaf hafa áhrif á stemninguna þegar von er á gestum, því borðið er oftar en ekki það fyrsta sem fólk tekur eftir er það mætir í hús. Og hvort sem um jól eða aðrar samverustundir er að ræða er oft setið til lengri tíma við matarborðið sem gerir upplifunina enn notalegri ef borðið er fallega skreytt.

Vilhelm

Á borðinu má sjá diska, skálar, hnífapör, glös, könnur og blómavasa frá Bitz. Fallegur kantur er á tauservíettunum frá Bitz, nánast gylltur og smellpassar við þema borðsins. Þriggja arma kertastjaki með fölbleikum snúningskertum og jólaskrauti er einnig úr versluninni. Sandlitaðuðu tauborðarnir utan um hnífapörin og á servíettunum fást einnig í Vogue fyrir heimilið.

Vilhelm

Það er tilvalið að leika sér smávegis þegar lagt er á borð, þá með að brjóta um servíetturnar á ýmsa vegu fyrir hvern og einn gest. Fersk blóm eða greinar eru ómissandi á borðið sem og kerti – því það lyftir borðinu „hærra“. Litlir hliðardiskar eða skálar eins og við sjáum á borðinu hér eru tilvaldar undir litla sæta súkkulaðimola, eða sem saltkar eða það sem hentar borðinu hverju sinni. Og til að fá glamúrinn á borðið, þá notum við eitthvað gyllt – það geta verið hnífapör, salatáhöld eða jafnvel lítil skál ef því er að skipta.

Vilhelm

Matarstellið er með einstaklega falleg form og munstur í vörulínum sínum, sem eru tímalaus og fáguð. Þetta tiltekna matarstell er blanda af bæði ljósum möttum diskum, sem og ljósum skálum með glansandi áferð og brúnum kanti sem setur sinn svip á vöruna.

Vilhelm

Vilhelm

Nánari upplýsingar á Vogue.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×