Markasúpa á Etihad er heimamenn skoruðu sex

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Jack Grealish var frábær í kvöld.
Jack Grealish var frábær í kvöld. EPA-EFE/Andrew Yates

Manchester City og RB Leipzig mættust í einhverjum ótrúlegasta leik síðari tíma í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Lokatölur 6-3 heimamönnum í vil í leik sem vart er hægt að finna lýsingarorð yfir.

Hollenski varnarmaðurinn Nathan Aké kom heimamönnum yfir með góðum skalla eftir hornspyrnu Jack Grealish þegar rúmur stundarfjórðungur var liðinn. Þegar tæpur hálftími var liðinn var staðan svo orðinn 2-0. Kevin De Bruyne átti þá fyrirgjöf sem Nordi Mukiele stýrði í eigið net.

Hollendingurinn hárprúði fagnar marki sínu í kvöld.EPA-EFE/Andrew Yates

Cristopher Nkunku minnkaði muninn þegar þrjár mínútur voru til hálfleiks með skallamarki eftir að Mukiele hafði fundið hann inn í vítateig City-manna. Adam var þó ekki lengi í paradís en heimamenn fengu vítaspyrnu örskömmu síðar.

Lukas Klostermann handlék þá knöttinn inna teigs og vítaspyrna dæmd. Riyad Mahrez fór á punktinn og þrumaði tuðrunni í netið. Staðan því 3-1 í hálfleik.

Leipzig minnkaði muninn í 3-2 snemma í síðari hálfleik. Aftur var það Nkunku sem skallaði boltann í netið. Að þessu sinni eftir fyrirgjöf Dani Olmo. Það tók heimamenn þó ekki langana tíma að ná aftur tveggja marka forystu.

Það gerði Grealish með góðu skoti eftir hafa sveigt framhjá manni og öðrum á leið sinni að markinu. Mark og stoðsending í fyrsta Meistaradeildarleiknum, ekki amalegt.

Ferran Torres hélt svo að hann hefði skorað fimmta mark Manchester City en það var dæmt af vegna rangstöðu. Nkunku fullkomnaði þrennu sína og hélt vonum Leipzig á lífi með marki á 73. mínútu leiksins. Að þessu sinni notaði hann hægri fótinn en ekki höfuðið til að koma knettinum í netið. 

Aðeins tveimur mínútum síðar var staðan hins vegar orðin 5-3 eftir að João Cancelo skoraði með fínu hægri fótar skoti eftir að hafa fengið sendingu frá İlkay Gündoğan.

Til að slökkva alla von um endurkomu þá nældi Angeliño – vinstri bakvörður RB LEipzig – sér í sitt annað gula spjald þegar rúmlega tíu mínútur lifðu leik og gestirnir manni færri undir lok leiks.

Gabriel Jesus skoraði svo sjötta mark heimamanna í þessum gufuruglaða leik, lokatölur 6-3 á Etihad-vellinum í Manchester í kvöld.


Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira