Fernandes og Pogba í stuði í stórsigri Manchester United á Leeds

Sigurður Orri Kristjánsson skrifar
Bruno Fernandes skoraði þrennu
Bruno Fernandes skoraði þrennu AP Photo/Jon Super

Eftir jafnan fyrri hálfleik þar sem heimamenn leiddu 1-0 opnuðust allar flóðgáttir í síðari hálfleik og þeir rauðklæddu fögnuðu öruggum 5-1 sigri.

Bruno Fernandes stal senunni og skoraði þrennu í leiknum en hin mörk liðsins skoruðu þeir Mason Greenwood og Fred. Það var Luke Ayling sem skoraði mark gestanna með fallegu skoti.

Paul Pogba átti stórleik fyrir Manchester United og gaf fjórar stoðsendingar, heimsklassa frammistaða hjá þeim franska sem hefur oft þurft að heyra gagnrýnisraddir á Old Trafford.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira