Fótbolti

Ítalska liðið heldur í hefðirnar

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Gianluca Vialli er aðstoðarmaður Roberto Mancini hjá Ítalíu.
Gianluca Vialli er aðstoðarmaður Roberto Mancini hjá Ítalíu. Matteo Ciambelli/Getty Images

Fótboltamenn og íþróttafólk almennt á það til að vera mjög vanafast og í raun hjátrúafullt. Þetta hefur ítalska landsliðið í knattspyrnu sannað það sem af er Evrópumótinu í fótbolta.

Þó Ítalía hafi verið á miklu skriði undanfarin misseri og ekki tapað í síðustu 29 leikjum sínum þegar EM hófst þá hefur liðið endurskapað skondið atvik sem átti sér stað fyrir fyrsta leik liðsins á mótinu.

Er liðið var á leið á leikvanginn fyrir leikinn gegn Tyrkjum þá gleymdist Gianluca Vialli, aðstoðarþjálfari liðsins, næstum. Hann rétt náði í skottið á rútunni áður en hún lagði af stað. 

Hefur þetta orðið til þess að liðsrúta Ítalía hefur næstum alltaf farið af stað án Vialli á mótinu.

Þetta virðist virka en Ítalía er komið alla leið í úrslitaleikinn og hefur ekki enn tapað leik á mótinu þó svo að það hafi þurft framlengingu gegn Austurríki í 16-liða úrslitum og vítaspyrnukeppni gegn Spánverjum í undanúrslitum.

Leikur Ítalíu og Englands hefst klukkan 19.00 og er í beinni útsendingu Stöðvar 2 Sport. Upphitun hefst klukkan 18.10.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×