Fótbolti

„Ég vil ekki tala um Manchester United“

Anton Ingi Leifsson skrifar
Sancho í leiknum í gær en hann spilaði vel í enska liðinu.
Sancho í leiknum í gær en hann spilaði vel í enska liðinu. EPA-EFE/Mike Hewitt

Jadon Sancho, nýjasti leikmaður Manchester United, vildi ekki ræða félagaskiptin eftir sigur Englands á Úkraínu í gær. Þeir ensku þar af leiðandi komnir í undanúrslit.

Tilkynnt var um félagaskiptin fyrr í vikunni en Sancho gengst undir læknisskoðun þegar Evrópumótinu lýkur.

Sancho er í enska hópnum og fékk sinn fyrsta byrjunarliðsleik á EM í gær í 4-0 sigrinum í gær en hann var ekki tilbúinn að ræða Manchester United.

„Til þess að vera sanngjarn þá vil ég ekki tala um Manchester United. Núna er öll mín einbeiting á Englandi,“ sagði Sancho eftir leikinn.

„Ég er í skýjunum. Þetta var skyldusigur í dag og ég er mjög ánægður að hafa fengið tækifæri. Þetta er sérstakt augnablik fyrir mig.“

„Þrátt fyrir að hafa ekki verið að spila þá hef ég gefið allt á æfingasvæðinu og verið tilbúinn ef kallið kæmi.“

„Við vissum að þetta væri stór leikur í dag. Úkraína er með gott lið en við erum himinlifandi,“ sagði Sancho að lokum.

England mætir Danmörku á miðvikudaginn í undanúrslitunum á Wembley.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×