Fótbolti

Segir Pogba fullkominn miðjumann

Anton Ingi Leifsson skrifar
Paul Pogba hefur átt gott Evrópumót til þessa.
Paul Pogba hefur átt gott Evrópumót til þessa. EPA-EFE/Zsolt Szigetvary

Paul Pogba, miðjumanni Frakka, hefur verið hrósað í hástert af þjálfaranum Didier Deschamps fyrir leik Frakka gegn Sviss í kvöld.

Liðin mætast í 16-liða úrslitunum í Búkarest í kvöld en Pogba hefur byrjað alla þrjá leiki Frakka í mótinu til þessa.

Pogba hefur hrifið Deschamps í leikjunum þremur sem er lokið í stjörnuprýddu liði Frakka.

„Paul er fullkominn miðjumaður. Hann hefur gæðin í þessar sendingar og það er hluti af hans leik,“ sagði Deschamps.

Frakkar voru í dauðariðlinum á mótinu en þeir voru í D-riðli ásamt Þýskalandi, Portúgal og Ungverjalandi.

„Þú verður að vera með réttu hreyfingarnar og hann er í frjálsri stöðu. Hans staða getur breyst og breytist í takt við aðrar stöður og staðsetningu aðra leikmanna.“

Hefst leikurinn klukkan 19.00 og er að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport EM.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×