United í frá­bærri stöðu eftir marka­súpa á Old Traf­ford

Anton Ingi Leifsson skrifar
Pogba fagnar marki sínu í kvöld.
Pogba fagnar marki sínu í kvöld. Matthew Peters/Getty

Manchester United er í góðri stöðu fyrir síðari leikinn gegn Roma í undanúrslitum Evrópudeildarinnar eftir 6-2 sigur á Roma í kvöld.

Það voru ekki liðnar níu mínútur er Bruno Fernandes skoraði fyrsta markið eftir frábæra sókn hjá heimamönnum. Cavani kom boltanum á Portúgalann sem vippaði honum skemmtilega inn.

Gestirnir fengu vítaspyrnu á fimmtándu mínútu er boltinn fór í hönd Paul Pogba. Úr vítaspyrnunni skoraði Lorenzo Pellegrini og á 34. mínútu kom Edin Dzeko Roma í 2-1.

Þannig stóðu leikar í hálfleik en fyrri hálfleikurinn gekk þó ekki áfallalaust fyrir Roma því þeir þurftu að gera þrjár skiptingar í fyrri hálfleik vegna meiðsla, þar á meðal markmannsskipti.

Síðari hálfleikur var ekki þriggja mínútna gamall er Cavani hafði jafnað metin og aftur var Cavani á ferðinni á 64. mínútu eftir slaka markvörslu Antonio Mirante í marki Roma.

Veisla United hélt áfram á 71. mínútu er Bruno skoraði úr vítaspyrnu sem var dæmd á Chris Smalling, fyrrum United-mann, er hann braut á Cavani. Bruno var öryggið uppmála á vítapunktinum.

Paul Pogba vildi einnig koma sér á blað og hann skoraði fimmta mark United stundarfjórðungi fyrir leikslok er hann stangaði fyrirgjöf hins portúgalska Bruno í netið.

Veislunin var ekki lokið því Mason Greenwood skoraði sjötta mark United fjórum mínútum fyrir leikslok en ekki var það merkileg markvarsla hjá Mirante í marki Roma.

Fleiri urðu mörkin ekki og ljóst að United er komið með annan fótinn í úrslitaleikinn eftir leik kvöldsins. Liðin mætast á ný í Roma í næstu viku.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira