Man City komið í undanúrslit eftir torsóttan sigur á Everton

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Kevin De Bruyne hóf leik á bekknum en kom inn í tæka tíð til að tryggja sigurinn.
Kevin De Bruyne hóf leik á bekknum en kom inn í tæka tíð til að tryggja sigurinn. vísir/Getty

Manchester City varð í kvöld annað liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum enska bikarsins þegar liðið vann 0-2 sigur á Everton á Goodison Park.

Íslenski landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson var í byrjunarliði Everton og lék allan leikinn á miðjunni.

Leikurinn var markalaus allt þar til á 84.mínútu þegar Ilkay Gundogan fylgdi á eftir skoti Aymeric Laporte sem hafnaði í slánni.

Skömmu síðar gerði belgíski miðjumaðurinn Kevin De Bruyne út um vonir heimamanna og gulltryggði Man City farseðilinn í undanúrslitin með marki í uppbótartíma.

Fyrr í dag tryggði Southampton sér sæti í undanúrslitum en seinni tveir leikirnir í 8-liða úrslitum fara fram á morgun þegar Chelsea og Sheffield United mætast áður en Leicester fær Manchester United í heimsókn.

Í kjölfarið verður dregið í undanúrslitaviðureignirnar.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira