Það var stál í stál þegar Chelsea og Manchester United mættust í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni.
Fyrri leikur liðanna á tímabilinu endaði með markalausu jafntefli í hrútleiðinlegum leik á Old Trafford og leikur dagsins var ekki mikið skárri ef horft er til skemmtanagildis.
Mest umtalaða atvikið úr fyrri hálfleiknum var þegar gestirnir kölluðu eftir vítaspyrnu þegar boltinn fór í hönd Callum Hudson Odoi innan vítateigs Chelsea. Dómarinn skoðaði atvikið í VAR en ákvað að dæma ekkert.
Gary Neville: "There's no doubt earlier in the season that this would have been a penalty. Hudson-Odoi's panic is the fact that his arm shouldn't be there."
— bwin (@bwin) February 28, 2021
Should Man Utd have been awarded a spot kick?#CHEMUN #PL pic.twitter.com/IiiJDJW6Gu
Óhætt er að segja að ekkert markvert hafi gerst í síðari hálfleiknum enda fór svo að leiknum lauk með markalausu jafntefli, 0-0.