Messi sló met en Börsungar fengu bara eitt stig gegn Ca­diz

Anton Ingi Leifsson skrifar
Messi skoraði í dag en það dugði ekki til. Svekkjandi vika fyrir Barcelona.
Messi skoraði í dag en það dugði ekki til. Svekkjandi vika fyrir Barcelona. Alex Caparros/Getty Images

Lionel Messi skoraði eina mark Barcelona er liðið gerði 1-1 jafntefli við Cadiz í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Börsungar fengu vítaspyrnu á 31. mínútu er Pedri var felldur í teignum. Auðvitað fór Messi á punktinn og skoraði.

Heimamenn í Cadiz fengu hins vegar vítaspyrnu á 88. mínútu er Clement Lenglet felldi Ruben Sobrino.

Á punktinn fór Alex Fernandez og skoraði. Lokatölur 1-1.

Messi sló hins vegar leikjamet Xavi í leiknum en Argentínumaðurinn er nú orðinn leikjahæsti leikmaður í sögu félagsins með 506 leiki.

Barcelona missti því af gullnu tækifæri til að saxa á forskot Atletico Madrid. Börsungar eru í þriðja sætinu með 47 stig, Real er í öðru sætinu með 52 stig en Atletico á toppnum með 55.

Cadiz er í fjórtánda sætinu með 25 stig.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira