Fótbolti

Sonur Aguero er barnabarn Maradona og guðsonur Messi en vill vera eins og Vardy

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Benjamin Aguero með afa sínum, Diego Maradona heitnum, fyrir nokkrum árum síðan.
Benjamin Aguero með afa sínum, Diego Maradona heitnum, fyrir nokkrum árum síðan. Getty/Gabriel Rossi

Benjamin Aguero hefur betri ættartengsl en flestir fótboltamenn en ein stærsta fyrirmyndin hans kemur út allt annarri átt en úr hans heimsfrægu fjölskyldu.

Benjamin Aguero á einn besta framherja í sögu ensku úrvalsdeildarinnar fyrir föður í Sergio Aguero og hann afi hans er Diego Armando Maradona, einn besti fótboltamaður sögunnar. Þá má ekki gleyma því að Lionel Messi er guðfaðir hans.

Fyrirmyndin hjá hinum ellefu ára gamla Benjamin Aguero er þó ekki Aguero, Maradona eða Messi. Nei einn af hans uppáhaldsleikmönnum er Jamie Vardy, framherji Leicester City.

Sergio Aguero sagði frá hrifningu sonar síns á Vardy í Amazon Prime heimildarmyndinni „All or Nothing“ og þá sérstaklega fyrirmælunum sem hann fékk frá syninum fyrir leik á móti Leicester.

Sergio Aguero skoraði þrennu í 5-1 sigri á Leicester City í ensku úrvalsdeildinni árð 2018 en eftir leikinn snerist allt um að að komast yfir treyju Vardy. Það var að beiðni stráksins hans.

„Sonur minn bað um hana,“ sagði Sergio Aguero við myndavélarnar inn í búningsklefanum.

„Hann sendi mér skilaboð og bað um treyju Vardy,“ bætti Aguero við.

Jamie Vardy hefur líka gert sitt til að heilla strákinn enda með 115 mörk í 231 úrvalsdeildarleik þar af 37 mörk á móti stóru liðunum sex. Sá eini sem hefur skorað fleiri mörk á móti risunum er Aguero eldri með 54 mörk.

Aguero yngri er líka mikill aðdáandi Kylian Mbappe hjá Paris Saint Germain eins og faðir hans sagði frá á Instagram á sínum tíma.

„Benja var alltaf hrifinn af David Silva og nú er hann að tala mikið um Mbappe. Hann er hrifinn af leikmönnum sem kunna að fara vel með boltann,“ svaraði Aguero. Hrifning hans á Kylian Mbappe hefur örugglega ekki minnkað eftir frammistöðu Mbappe á móti guðföðurnum í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×