Fótbolti

Mikil­vægur sigur hjá Alberti og fé­lögum á meðan Guð­laugur Victor mátti þola súrt tap

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Albert og félagar unnu góðan sigur í dag.
Albert og félagar unnu góðan sigur í dag. ANP Sport/Getty Images

Albert Guðmundsson og AZ Alkmaar vann mikilvægan sigur í Evrópubaráttunni í Hollandi. Á sama tíma eru Guðlaugur Victor Pálsson og samherjar hans í Darmstadt að sogast niður í fallbaráttu þýsku B-deildarinnar. 

Þá hentu Hólmbert Aron Friðjónsson og hans menn í Brescia frá sér 3-0 forystu í ítölsku B-deildinni. 

Albert var í byrjunarliði AZ er liðið heimsótti FC Emmen í hollensku úrvalsdeildinni. Lék hann rúmar 90 mínútur á hægri væng liðsins í dag en var tekinn af velli í uppbótartíma leiksins.

Eina mark leiksins skoraði Yukinari Sugawara á 71. mínútu og tryggði gestunum í AZ þar með stigin þrjú.

Albert og félagar eru nú í 4. sæti deildarinnar með 40 stig en þar fyrir ofan eru Vitesse með 42, PSV Einhoven með 43 og svo Ajax á toppi deildarinnar með 50 stig. Öll liðin eiga leik til góða á AZ.

Guðlaugur Victor lék allan leikinn á miðri miðju Darmstadt sem tapaði 2-1 á eins súran hátt og hægt er gegn Nürnberg. Gestirnir höfðu komist yfir um miðbik síðari hálfleiks en Fabian Holland jafnaði metin fyrir Darmstadt úr vítaspyrnu á 90. mínútu leiksins.

Þegar þrjár mínútur voru svo komnar fram yfir venjulegan leiktíma skoraði Nicolai Rapp sjálfsmark og gestirnir fóru með 2-1 sigur af hólmi.

Guðlaugur Victor og félagar eru nú í 13. sæti af 18 með 22 stig eftir 20 leiki, fimm stigum fyrir ofan fallsæti.

Guðlaugur Victor Pálsson hefur leikið vel með Darmstadt þrátt fyrir að liðinu hafi gengið illa.MYND/STÖÐ 2 SPORT

Þá hentu Hólmbert Aron Friðjónsson og hans menn í Brescia frá sér 3-0 forystu í ítölsku B-deildinni er liðið gerði 3-3 jafntefli við Cittadella. Staðan var 3-1 þegar Hólmbert Aron kom inn af bekknum á 75. mínútu en því miður skoruðu gestirnir tvívegis í kjölfarið og lauk leiknum með jafntefli.

Brescia er í 14. sæti ítölsku B-deildarinnar með 22 stig að loknum 21 leik, rétt fyrir ofan fallsæti. Birkir Bjarnason var ekki í leikmannahóp Brescia í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×