Erlent

Bæði Bezoz og Branson sendu geimför út í geim

Samúel Karl Ólason skrifar
Geimskot Blue Origin og Virgin Orbit heppnuðust en villa kom upp við tilrauna NASA.
Geimskot Blue Origin og Virgin Orbit heppnuðust en villa kom upp við tilrauna NASA. Vísir/AP/GETTY/Twitter

Undanfarna daga hafa nokkrar vendingar átt sér stað í þróun geimferða. Tvö einkafyrirtæki gerðu mikilvægar tilraunir með því að skjóta tveimur geimförum út í geim og Geimvísindastofnun Bandaríkjanna kveikti í fyrsta sinn á hreyflum eldflauga sem eiga að skjóta geimförum til tunglsins og jafnvel lengra.

Fyrirtækin sem um ræðir heita Blue Origin, sem er í eigu Jeff Bezos, og Virgin Orbit, í eigu Richard Branson.

Starfsmenn Blue Origin skutu geimfari á loft með New Shepard eldflaug sem lenti aftur á jörðu niðri að geimskotinu loknu. Um borð í geimfarinu var gínan Mannequin Skywalker en markmið fyrirtækisins er að geta skotið fólki og birgðum út í geim á ódýran máta með því að endurnýta eldflaugar.

Blue Origin vinnur einnig að því að þróa lendingarfar fyrir ætlaðar tunglferðir NASA á næstu árum.

New Shepard eldflaugar Blue Origin geta þó ekki farið langt út í geim. Allt að sex manns munu geta farið í einni ferð og varið um þremur til fjórum mínútum á braut um jörðu.

Hér má sjá mynd sem útskýrir hvernig New Shepard geimferðirnar fara fram.BlueOrigin

Skotið á fimmtudaginn var fjórtánda tilraunaflug New Shephard og vonast forsvarsmenn Blue Origin til þess að geta skotið fólki á loft í fyrsta sinn innan nokkurra mánaða.

Hér að neðan má sjá útsýnið hjá Mannesquin Skywalker á fimmtudaginn og geimskotið sjálft.

Starfsmenn Virgin Orbit skutu svo sinni fyrstu eldflaug og gervihnöttum á braut um jörðu í gær. Það var gert undan ströndum Kaliforníu.

Það geimskot fór þannig fram að flugvélin Cosmic Girl var notuð til að bera eldflaugina LauncherOne upp í háloftin. Eldflauginni var svo sleppt og tóku hreyflar hennar við og báru eldflaugina út í geim.

Sambærileg tilraun misheppnaðist í fyrra.

Með þessu fyrirkomulagi vonast forsvarsmenn Virgin Orbit til þess að geta sparað mikinn eldsneytiskostnað við geimskot.

Fyrirtækið hefur gefið út að tilraunaskotið feli í sér að nú verði hægt að byrja að skjóta gervihnöttum á loft fyrir viðskiptavini Virgin Orbit.

Við þetta má svo bæta að einkafyrirtækið Rocket Lab hætti við að skjóta gervihnöttum á braut um jörðu frá Nýja Sjálandi um helgina og að einkafyrirtækið SpaceX mun skjóta gervihnöttum á braut um jörðu á morgun.

Bilun kom upp við tilraun NASA

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna gerðu fyrstu tilraunina með hreyfla eldflaugarinnar Space Launch System, eða SLS, í Mississippi á laugardaginn. Hreyflarnir fjórir voru settir í gang og áttu að vera í gangi í um átta mínútur. Þeir stoppuðu þó eftir 67 sekúndur.

 Þá hafði komið upp bilun í einum hreyflinum.

SLS eldflaugin er mikilvæg í Artemis verkefninu, sem snýr að því að senda geimfara til tunglsins á nýjan leik á næstu árum og koma þar upp geimstöð. Þróun eldflaugarinnar hefur þó verið mun dýrari en til stóð og tafist verulega. Eldflaugin á að vera sú öflugasta sem hefur verið smíðuð.

Enn sem komið er hefur NASA veitt litlar upplýsingar um hvað kom upp á í tilrauninni um helgina. Vísindamenn stofnunarinnar, Boeing og Aerojet Rocketdyne munu fara yfir tilraunina og greina nákvæmlega hvað gerðist.

Tilraunin átti ef til vill að tryggja SLS í sessi en nú er framtíð eldflaugarinnar óljós. Ný ríkisstjórn tekur við völdum í Bandaríkjunum í vikunni og hingað til hefur framboð Joe Biden gefið lítið út varðandi áherslur sínar í geimferðum og rannsóknum.


Tengdar fréttir

Flottustu myndirnar úr geimnum

Á hverju ári taka geimfarar um borð í Alþjóðlegu geimstöðinni mikinn fjölda ljósmynda út um glerglugga sem snýr í átt að jörðinni. 

Geimfararnir sem stefna á tunglið

Geimvísindastofnun Bandaríkjanna (NASA) opinberaði í gær hóp geimfara sem hafa verið valdir til að taka þátt í Artemis áætluninni. Hún snýr að því að hefja mannaðar geimferðir til tunglsins á nýjan leik og nota það sem stökkpall fyrir geimferðir lengra út í sólkerfið og þá sérstaklega til mars.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×