Fótbolti

Segir HK með veikari hóp í ár: Var á leið til Englands að skoða leikmenn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Brynjar Björn var svekktur með úrslitin.
Brynjar Björn var svekktur með úrslitin. vísir/bára

Brynjar Björn Gunnarsson, þjálfari HK, segir að leikmannahópur liðsins sé veikari í ár en í fyrra. Liðið sé með svipað lið en ekki sé mikil breidd. Hann var á leið til Englands að skoða leikmenn er kórónuveiran skall á.

Brynjar Björn var gestur í Sportinu í dag þar sem farið var yfir víðan völl og þar var einnig komið inn á leikmannamarkaðinn þar sem HK hefur ekki verið að gera stóra hluti heldur frekar misst leikmenn.

„Ég vona að við fáum að bæta aðeins í en á sama tíma er ég undirbúinn að fara inn í mótið með þennan hóp. Til að byrja með gef ég mér þær forsendur að ég fari með þennan hóp inn í mótið,“ sagði Brynjar.

„Það þýðir lítið að vinna með ef og hefði. Staðan er svona. Við höfum reynt við leikmenn en ekki náð þeim leikmönnum sem við höfum reynt að ná í. Við erum í dag með veikari hóp. Við erum með áþekkt lið en örlítið veikari hóp. Útlitið í dag er þannig að mótið mun spilast þétt og hratt og þá þarftu að vera með smá dýpt í hópnum.“

Hann segir að HK hafi verið byrjað að leita að styrkingu er kórónuveiran skall á. Brynjar ætlaði að nýta tengingar sínar í Englandi.

„Við vorum farnir að leita út fyrir landsteinana í byrjun mars. Við erum aðallega að leita að leikmönnum hér heima á Íslandi; hvort sem það eru eldri og reyndari eða yngri og efnilegri leikmenn sem gætu fengið tækifæri hjá HK að spila í efstu deild.“

„Ég var farinn að setja mig í samband við menn úti í Englandi, til að byrja með, og var á leiðinni þangað út að kíkja á leikmenn,“ sagði Brynjar.

Klippa: Sportið í dag - Brynjar Björn um frekari liðsstyrk til HK

Sportið í dag er á dagskrá á Stöð 2 Sport alla virka daga klukkan 15.00. Upptökur af fyrri þáttum má nálgast á sjónvarpsvef Stöðvar 2. Stöð 2 Sport er hluti af Sportpakkanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×