Áratug gæti tekið að leggja léttlestakerfi Óli Kristján Ármannsson skrifar 15. desember 2014 07:00 Hér hefur verið teiknuð leið léttlestar (sporvagns) um þróunarásinn í aðalskipulagi Reykjavíkur til 2030 þar sem byggð á að þéttast, frá Mýrargötu um Hverfisgötu, Laugaveg, Suðurlandsbraut, yfir Elliðavog, um Stórhöfða og að nýrri byggð við Keldnaholt í Grafarvogi. Mynd/Gísli Rafn Guðmundsson
Sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu hafa beint sjónum bæði að hraðvagna- og léttlestakerfi í viðleitni til að bæta almenningssamgöngur. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, segir tekið fagnandi hugmyndum og útfærslum á borð við þá sem Gísli Rafn Guðmundsson borgarhönnuður vann í tengslum við lokaverkefni í meistaranámi í arkitektúr við háskólann í Lundi í Svíþjóð.Gísli Rafn Guðmundsson.Fjallað var um verkefni Gísla Rafns í Markaðnum, fylgiblaði Fréttablaðsins um viðskipti og efnahagsmál, síðasta miðvikudag. Þar kom fram hvernig léttlestakerfi (eða sporvagn) geti haft áhrif á þróun byggðar í borginni. Dagur segir liggja fyrir að höfuðborgarsvæðið þurfi afkastameiri almenningssamgöngur. „Og sveitarfélögin hafa verið að skoða bæði hraðvagnakerfi og hugsanlega léttlestakerfi,“ segir hann. Val á afkastameira kerfi almenningssamgangna og útfærslu þess segir hann svo eitt af verkefnum í nýju svæðisskipulagi borgarinnar. „Þannig að við tökum öllum svona hugmyndum fagnandi inn í þá skoðun.“ Að mati Dags var áhugavert að sjá hvernig nýtt aðalskipulag Reykjavíkur var innblástur að verkefni Gísla Rafns. „En með því verður svona samgöngumáti í fyrsta skipti að raunhæfum möguleika með því að byggja þéttar á ákveðnum þróunarásum,“ segir hann, en í verkefni Gísla Rafns er gert ráð fyrir léttlestakerfi með föstum biðstöðvum þar sem fyrir liggur að þétta eigi byggð í borginni, frá miðbæ í vestri og um Suðurlandsbraut, Voga og upp í Grafarvog. Fjöldi kosta fylgir bættum almenningssamgöngum að mati borgarstjóra. Þannig geti líka verið kjaramál að hafa aðgang að góðum og öruggum ferðamáta. „Þá þarf ekki jafnstóra bílakjallara undir húsum, en þeir vega mjög þungt í íbúðaverði. Svo skiptir heimilin líka máli að þurfa ekki að reka tvo bíla,“ segir hann. Að auki séu þekkt hliðaráhrif í þá veru að svæði í kring um lestarstöðvar og góðar almenningssamgöngur verði eftirsóttari, bæði til uppbyggingar og eins vegna aukinna lífsgæða. Um leið viðurkennir Dagur að horft sé til lengri tíma í vangaveltum sem þessum „Jafnvel þó við tækjum svona ákvörðun í dag, þá sýnir reynslan erlendis frá að það tekur auðveldlega áratug að hrinda henni í framkvæmd.“ Mestu máli skipti hins vegar að orðin sé til á höfuðborgarsvæðinu mjög breið samstaða um að efla þurfi almenningssamgöngur. „Við áttum okkur á því að þær þurfa að vera afkastameiri og að þetta þurfi að vera hágæðasamgöngur og sveitarfélögin eru samstiga í að skoða þessi mál. Ég á því von á því að þessi umræða verði ennþá meira áberandi á næstu misserum.“
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Tilbúin að takmarka krónutölu og íslensk skólastúlka verður fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira