Mest ónæði af drykkju á Íslandi Óli Kristján Ármannsson skrifar 21. maí 2014 07:00 Tölur WHO sýna að 34,9% Íslendinga sem drekka stunda ölvunardrykkju en 34,5% Svía. Fréttablaðið/Hari
Unnið er að samanburðarkönnun á Norðurlöndum á áfengisneyslu fólks og áhrifum hennar á aðra en neytandann. Rannsóknin kemur í kjölfar nýbirtra talna Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar (WHO) á áfengisdrykkju og heilsufarsáhrifum hennar víða um heim og könnunar sem Capacent vann fyrir Landlæknisembættið og birti í mars. Þar voru bornar saman tölur um áfengisnotkun og áhrif hennar árin 2001, 2004 og 2013. Rafn M. Jónsson, verkefnisstjóri áfengis- og vímuvarna hjá Landlækni, segir niðurstaðna að vænta í samnorræna samanburðinum í haust. „En við virðumst til dæmis verða fyrir meiri áhrifum af neyslu annarra en Svíar þó að við drekkum minna, svona samkvæmt fyrstu vísbendingum,“ segir Rafn. „Við drekkum illa um helgar og verðum fyrir meiri röskun vegna ölvunar.“ Undir röskun getur til dæmis fallið beint áreiti frá fullu fólki og eins að verða ekki svefnsamt vegna háreysti og áfengisláta. Hér segir Rafn þjóðina þó lítið hafa bætt við sig undanfarin ár í svokallaðri ölvunardrykkju (sem einnig hefur verið kölluð óhófsdrykkja, eða binge drinking), en aukningin hafi hins vegar verið á öðrum vígstöðvum, svo sem í neyslu með mat. „Þegar bjórinn bættist við þá fórum við úr fjórum áfengislítrum á mann á ári í sjö lítra.“30% sögðust árið 2013 hafa orðið fyrir ónæði vegna drukkins einstaklings á skemmtistað eða í einkasamkvæmi. Árið 2001 sögðust 13% hafa orðið fyrir slíku.
Mest lesið Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Innlent Skógareldur ógnar byggð í Álasundi Erlent Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Innlent Staðfesta andlát Larijani og Soleimani Erlent Hóta hefndum fyrir drápið á Larijani Erlent Skárri staða í Álasundi Innlent Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Innlent Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Innlent Geti ekki starfað undir Bandaríkjaforseta með góðri samvisku Erlent Kosningavaktin 2026: Landsmenn kjósa sér sveitarstjórnir Innlent Fleiri fréttir Lífshættuleg líkamsárás: Fimm úrskurðaðir í gæsluvarðahald Hættustigi aflýst og rýmingu aflétt á Ísafirði Skárri staða í Álasundi Umsókn Samhjálpar samþykkt en afgreiðslu frestað um viku Stefán Þór leiðir jafnaðarmenn í Fjarðabyggð Starfsmaður grunaður um kynferðisbrot á leikskóla Gagnheiðargöng verði sáttaleið Austfirðinga Framtíð Foreldrahúss í óvissu: Nær ekki í Ingu Sæland Ákvarða stýrivexti í skugga versnandi verðbólguhorfa Hugsanleg veggjöld á Reykjanesbraut og Suðurlandsvegi: „Þessi áform mega ekki ná fram að ganga“ Ekið á skólarútu Viðskiptavinir hafi fengið fjölda svikapósta Aðlögun að ESB sé þegar hluti af daglegu lífi Komu biluðum báti til bjargar Leita til háskólans fyrir íslenskupróf Mesta kvikusöfnun á milli eldgosa frá upphafi eldgosahrinu Niðurrifið á göngubrúnni hafið Vegagerðin hafnaði tilboði Icelandair í Ísafjarðarflugið Leggur til að atkvæðagreiðslunni verði frestað Alvarlegt að svo ill meðferð á dýrum sé metin refsilaus Þorsteinn tekur við formennsku af Fanneyju Birnu Vilja hætta við Borgarlínu en stórefla strætisvagnakerfið Bein útsending: Ársfundur Samorku Atvinnuhúsnæði á Ísafirði rýmt eftir snjóflóð Kviknaði í kaffibrennsluofni Vaxtaákvörðun framundan og snjóflóðahætta fyrir vestan Um 44 prósent hlynnt forgangsröðun í samgönguáætlun Yfirheyrslur gætu staðið yfir fram á kvöld Árekstur við Suðurlandsbraut „Persónulegir þættir koma hér hvergi nærri“ Sjá meira