50 tilfelli krabba á ári tengd áfengi Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar 21. maí 2014 14:00 Hættan á brjóstakrabbameini eykst um 10 prósent sé drukkið eitt glas af léttvíni á dag að staðaldri. Mynd/Nordicphotos/Getty
Fimm prósent allra krabbameinstilfella má rekja til áfengisneyslu. Þar með er áfengi næststærsti einstaki áhættuþátturinn fyrir krabbameini en tóbak er sá stærsti. Þetta skrifa tveir sænskir prófessorar, Peter Friberg og Peter Allebeck, í aðsendri grein í Dagens Nyheter. Vísa prófessorarnir í nýja skýrslu undirstofnunar Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, World Cancer Report 2014. Prófessorunum finnst undarlegt hversu lítil vitneskja Svía um skaðsemi áfengis er. Nú sé vitað að áfengi valdi bæði brjóstakrabbameini og krabbameini í endaþarmi og ristli. Jafnvel tiltölulega lítil áfengisneysla auki hættuna. Til dæmis eykst hættan á brjóstakrabbameini um 10 prósent sé drukkið eitt glas af léttvíni á dag að staðaldri, skrifa prófessorarnir. Jafnframt að þótt sumt bendi til að hófleg drykkja geti haft jákvæð áhrif í tengslum við hjarta- og æðasjúkdóma sýni rannsóknir að í heild sé skaðinn umtalsvert meiri en gagnsemin.laufey TryggvadóttirLaufey Tryggvadóttir, prófessor og framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Íslands, segir að almennt vilji Íslendingar ekki vita um neikvæðar afleiðingar áfengisdrykkju. „Ég er búin að vera að fræða fólk um krabbamein í mörg ár. Fólk hefur mikinn áhuga á því sem ég er að segja en þegar ég fer að tala um áfengi stinga flestir fingrunum í eyrun svona sálfræðilega séð. Fólk ræður auðvitað hvort það drekkur eða ekki en það þarf að fá upplýsingar um þessi mál og vinna úr þeim.“ Í grein sænsku prófessoranna, sem vilja banna áfengisauglýsingar og hækka skatta á áfengi, segir að innan Evrópusambandsríkjanna greinist á hverju ári 136 þúsund ný krabbameinstilfelli sem tengjast áfengisneyslu. Laufey bendir á að áfengisneysla á Íslandi sé enn talsvert minni en í Evrópu þótt hún hafi aukist mikið síðustu áratugi. Gróflega áætlað mætti rekja 50 krabbameinstilfelli á ári á Íslandi til áfengisneyslu, 37 hjá körlum og 13 hjá konum. „Þá er miðað við að árleg áfengisneysla hér hjá eldri en 15 ára sé 62 prósent af neyslu Dana eins og kom fram í nýlegri skýrslu Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar. Á tíu ára tímabili væru því 500 manns að greinast með krabbamein vegna áfengisneyslu. Þetta er grófleg áætlun en hjá Krabbameinsskránni er fyrirhugað að ljúka við nákvæma útreikninga á fjölda krabbameina sem rekja má til áfengisneyslu og fleiri áhættuþátta innan eins árs.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira