Sme, reiðhjólamaður og laus hundur í hár saman Jakob Bjarnar skrifar 21. maí 2014 11:14 Sigurjón og Garpur voru á morgungöngu, Garpur laus og gjammaði á hjólreiðamann sem hrópaði þá ókvæðisorðum að blaðamanninum.
Sigurjón M. Egilsson blaða- og útvarpsmaður, sem oft er kallaður sme með vísan til upphafstafa nafns hans, er hundaeigandi og er duglegur að stunda útivist og göngur ásamt með hundi sínum Garpi, sem er af íslensku fjárhundakyni. Þeir félagar lentu í hremmingum í gærmorgun; þeim lenti saman við glannalegan reiðhjólamann. Hvorki Sigurjón né hjólamaðurinn telst saklausir en Garpur fær að njóta vafans.Með hundinn lausan„Ég játa. Var ekki með Garp í taumi þegar við gengum Blikastaðarnes í morgun. Veðrið var frábært og að venju hljóp hann í fjörunni og fékk sér nokkrum sinnum stutta sundspretti. Gott og vel. En, þar sem við gengum á göngustígnum nánast hlið við hlið kom aftan að okkur maður á reiðhjóli og það á ógnarhraða, eflaust ekki undir 30 km. Að sið reiðhjólinga hringdi hann ekki bjöllunni, gerði okkur ekki viðvart,“ segir Sigurjón sem greinir frá þessum væringum á Facebook. Sigurjón segir svo frá að hann hafi ekki haft nokkurt svigrúm til að koma taumi á Garp, svo snögglega birtist maðurinn á hjólinu og Garpur hljóp að fjárhundasið á eftir hjólinu, nokkra fáa metra, og lét í sér heyra. „Hjólreiðarmanninum mislíkaði, snéri sér í hálfhring og kallað eitthvað til mín, sem ég gat ekki greint hvað var, en ekki leyndi sér ekki að hann var ósáttur við að Garpur var ekki í taumi.“Stórhættulegur hjólamaðurHundaeigandinn Sigurjón viðurkennir fúslega að hann hefði lögum samkvæmt átt að hafa Garp í taumi. En bendir á að það afsaki ekki glanna- og háskalega ferðina sem var á hjólamanninum. „Hefði ég verið einn á ferð og ákveðið að ganga þvert yfir gangstíginn í sömu mund og hjólreiðingurinn kom á ofsaferð, hvað þá? Örugglega hefði orðið slys.“ Og Sigurjón segist ekki vita hvor er verri, hann með lausan hund eða hjólamaðurinn „brunandi á ógnarhraða á þröngum göngustíg og hirða ekkert um að láta vita af sér.“Garpur fær áfram að ganga laus Að sögn Sigurjóns er þessi maður sem hann lenti í stælum við ýkt dæmi um framferði reiðhjólamenn. Þeir séu ekki allir svona. „Í sömu gönguferð kom annar reiðhjólingur,“ eins og Sigurjón kallar hjólamennina. „Garpur sýndi honum áhuga, sá kallaði til mín og sagði mér engar áhyggjur að hafa. Hann sagðist skilja hunda og hafa gaman af þeim.“ Og Sigurjón ætlar sér ekki að láta lög um lausagöngu hunda í Reykjavík aftra því að þeir félagar fái notið morgungöngunnar til hins ýtrasta: „Í fyrramálið fær Garpur frelsi á sama stað og venjulega. Annað er hundum ekki bjóðandi,“ segir Sigurjón og er með eftirfarandi skilaboð til reiðhjólafólks: „Ef þeir sem hjóla hratt lesa þetta, þá vinsamlegast látið okkur gangandi vita eins fljótt og hægt er.“
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Sjá meira