Enski boltinn á lokaða sér rás 7. maí 2005 00:01
Íslenska sjónvarpsfélagið sem rekur Skjá einn, hefur ákveðið að setja á laggirnar nýja áskriftarstöð sem er tileinkuð enska boltanum. Þessi nýja stöð mun sýna frá fleiri knattspyrnuleikjum í ensku úrvalsdeildinni en þekkst hefur í íslensku sjónvarpi. Stöðin mun sýna samtímis frá fleiri en einum leik í einu á mismunandi rásum. Í tilkynningu frá Íslenska sjónvarpsfélaginu segir að í boði verði allt efni tengt enskri knattspyrnu, fréttir af liðum og leikmönnum, fallegustu mörkin og ítarlegir spjallþættir við sérfræðinga um enska boltann. Með tilkomu áskriftarstöðvarinnar flyst enski boltinn af dagskrá SkjásEins og segir í tilkynningunni að fótboltinn muni því ekki skarast við annað vinsælt afþreyingarefni á SkjáEinum. Allir leikir verða sendir út í stafrænum gæðum og munu myndgæði því verða eins og best verður á kosið. Kröfuharðir aðdáendur sem hingað til hafa þurft að sætta sig við að geta ekki valið á milli leikja í ensku úrvalsdeildinni, sem leiknir eru samtímis, geta nú valið þann leik sem heillar mest. Áskrifendur geta því gengið að því vísu að það knattspyrnulið sem höfðar mest til þeirra verði í sjónvarpinu viku eftir viku, það eina sem þeir þurfa að gera er að velja hvaða leik þeir kjósa að horfa á. Þá verður þjónusta við áhorfendur aukin til muna með ítarlegri fréttaskýringarþáttum um ensku úrvalsdeildina þar sem lengd þátta þarf ekki að taka tillit til hefðbundinnar dagskrár venjulegra sjónvarpsstöðva. Síminn mun sjá um dreifingu á efninu í gegnum dreifikerfi sitt. Ennfremur mun Síminn annast dreifingu á móttökubúnaði fyrir Íslenska sjónvarpsfélagið.
Innlent Íþróttir Menning Mest lesið „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Körfubolti Beta aldrei upplifað annað eins Fótbolti Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ Sport „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti Sport Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Enski boltinn Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót Fótbolti Söguleg endurkoma Knicks Körfubolti „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Thelma Karen fer ekki á EM Fótbolti Fleiri fréttir Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Borga rútur svo stuðningsmenn komist á leikinn Marokkó missir lykilmenn rétt fyrir HM Beta aldrei upplifað annað eins Danir munu liggja í því á Icebox Gaslýsingar, starfsöryggi og heimskt lið Hækka verðlaunafé um tuttugu prósent Frétti fyrst á samfélagsmiðlum að hann væri að missa vinnuna Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu Elstir og yngstir á HM Thelma Karen fer ekki á EM Sá launahæsti í sögunni með fleiri milljarða í tekjur á ári Þurfa að breyta treyjunum rétt fyrir heimsmeistaramót „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Bætti óvænt fjórtán ára gamalt met Á sama sviði og hetjurnar: „Verður ótrúlega skemmtilegt að upplifa“ Fær einn lokaséns eftir áfall á Spáni: „Ég var bara mjög hrædd“ HM-minning: Breytti öllu með „hræðilegri“ klippingu á miðju HM Edwards rekinn frá Úlfunum „Slakiði á“ Söguleg endurkoma Knicks Táningur sakfelldur fyrir morð á frjálsíþróttamóti HM-dómarinn sem var rekinn heim fékk hetjumóttökur Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Ronaldo fór illa með færin í kvöld Birkir Már skorar þegar það er Megavika Sjá meira