Fimmtán ára stúlku boðinn sex ára samningur Viktoría Hermannsdóttir skrifar 13. desember 2014 08:00 Elite fyrirsætuskrifstofan býður fyrirsætum 6 ára samning sem er ekki uppsegjanlegur. Mynd/Getty
Elite fyrirsætumiðlunin á Íslandi býður fyrirsætum samning til sex ára sem er óuppsegjanlegur af hálfu fyrirsætunnar nema hún hætti fyrirsætustörfum. Samningur sem Fréttablaðið hefur undir höndum og var boðinn 15 ára stúlku felur í sér sex ára skuldbindingu við fyrirtækið en af því að hún er undir lögaldri áttu foreldrar hennar að skrifa undir samninginn fyrir hennar hönd. Þykir þetta nokkuð langur samningur en hjá Eskimo sem er einnig íslensk fyrirsætuskrifstofa, eru samningar einungis gerðir frá eins til þriggja ára og eru uppsegjanlegir að hálfu beggja aðila. Samningarnir eru staðlaðir frá Elite samsteypunni að utan en Elite á Íslandi starfar með leyfi frá þeim og er gert að vinna eftir þeirra reglum. Samkvæmt samningnum þá getur fyrirsætan ekki sagt honum upp nema hún ætli sér að hætta í fyrirsætustörfum. Ákveði hún að byrja aftur að vinna sem fyrirsæta þá tekur samningurinn aftur gildi. Eins kemur fram að: „komi til þess að fyrirsætunni verði ókleift að sinna starfsskyldum sínum t.d vegna veikinda, barnsburðar eða náms, framlengist gildistími samningsins um þann tíma.“Margrét María SigurðardóttirMargrét María Sigurðardóttir umboðsmaður barna, segir foreldra bera meginábyrgð á velferð barna sinna og beri að setja hagsmuni þeirra ávallt í forgang. „Foreldrar eiga því ekki að samþykkja slíka samninga ef þeir telja þá með einhverjum hætti ósanngjarna eða skaðlega fyrir barnið,“ segir Margrét. „Jafnvel þó að foreldrar samþykki svona samning þá tel ég ekki rétt að líta svo á að hann skuldbindi barn til lengri tíma. Það er óeðlilegt að að foreldrar geti skuldbundið barn, sem ef til vill hefur ekki aldur og þroska til að skilja samning, í mörg ár. Þetta er hins vegar álitamál sem yrði að leysa úr hverju sinni, til dæmis út frá efni samningsins og aðstæðum að öðru leyti,“ segir hún en tekur fram að þó þurfi líka að virða óskir barnsins. „Mikilvægt er að virða rétt barna til að hafa áhrif á eigið líf og ef það er eindregin ósk barns að vinna við fyrirsætustörf eiga foreldrar að hlusta á þá skoðun og taka tillit til hennar í samræmi við aldur og þroska. Ég á erfitt með að sjá að það geti talist barni fyrir bestu að skrifa undir samning sem skuldbindur það í mörg ár og tel raunar álitamál hvort slíkur samningur gæti yfir höfuð talist bindandi fyrir barnið til lengri tíma.“ Gísli Sigurðsson framkvæmdastjóri Elite vildi ekki tjá sig um efni samningsins þegar Fréttablaðið leitaði eftir því. Bað hann um að fá spurningar sendar skriflega en veitti svo ekki svör við þeim. Segi hann samninginn trúnaðarmál milli skrifstofunnar og fyrirsætunnar og því geti hann ekki tjáð sig um hann.
Mest lesið Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Innlent „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Innlent Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Innlent Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Innlent Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Innlent Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Innlent Ein matskeið og þá er dauðinn vís Innlent Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Erlent Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Innlent Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Erlent Fleiri fréttir Tilbúin að takmarka krónutölu og íslensk skólastúlka verður fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Hvað þýðir sjö í nýju námsmati? Fundu mikið magn vímuefna og peninga við leit Sláandi hugmyndir íslenskra karla um ofbeldi Bjóða út sorphirðu í Breiðholti til sex ára Reglur um dvalarleyfi hertar og filippseyskar au pair úr sögunni Leggur til að þingmenn verði 85 í stað 63 Skipti engu hvort ummælin hafi verið sett fram í kaldhæðni Marco Rubio á leið til Íslands „Dapurlegt pólitískt útspil hjá oddvita Samfylkingar“ Ekki búið að finna nýjan lögreglustjóra hátt í hálfu ári síðar Alvarlega slasaður eftir fall af svölum Árekstur við Hamraborg Engin aðstoð við próftöku og litaðar númeraplötur Uppsagnir hjá Klettabæ Ingó veðurguð hafði betur í Landsrétti Kristrún tilbúin í aðgerðir Inga vildi alls ekki svara spurningum fréttamanns Ákærður fyrir að nauðga sofandi og ölvaðri dóttur sinni Væntingar um útspil tengt gjaldahækkunum Neituðu sök við þingfestingu Straumsvíkurmálsins Kveður svefnlyfin eftir átján ára notkun „Ég væri að ljúga ef ég segði að það væri tilviljun“ Sniðganga geti verið túlkuð sem yfirlýsing ríkisstjórnarinnar Sjá meira