Tekjuhæstu Íslendingarnir hækkuðu í launum í fyrsta skiptið frá hruni Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 26. júlí 2012 18:31
Laun tekjuhæstu Íslendinga landsins hækkuðu í fyrsta skipti frá hruni á árinu tvö þúsund og ellefu. Ritstjóri Frjálsrar verslunar segir efnahagslífið vera farið að mjakast upp á við og meira svigrúm til launahækkana sé nú innan fyrirtækja eftir mörg hundruð milljarða afskriftir. Tekjublað Frjálsrar verslunar fyrir árið 2011 kom út í dag. Lang tekjuhæsta stétt landsins er nú í fyrsta skipti sjómenn en tvö hundruð tekjuhæstu sjómenn og útgerðarmenn voru með að meðaltali 2,4 milljónir króna í mánaðarlaun á árinu. Laun forstjóra fyrirtækja eru í öðru sæti en í fyrsta skipti frá hruni hækka þau milli ára um tvö hundruð þúsund krónur en meðallaun tvö hundruð launahæstu forstjóra er 2,2 milljónir á mánuði. Millistjórnendur hækka einnig en þeir hafa nokkurn veginn haldið sínu í gegnum hrunárin og nálgast þeir stjórnendurnar óðfluga, en meðal laun tvö hundruð launahæstu næstráðenda var tvær milljónir króna. Bankamenn eru einnig farnir að rétta úr kútnum og hækka þeir um hundruð þúsund krónur milli ára. „Ef við horfum á heildarmyndina þá er þetta blað að sýna það að við erum svona búin að vera í efnahagslegri lægð eftir hrunið, það má eiginlega segja sem svo að við séu komin á botninn og byrjuð að mjakast upp," segir Jón G. Hauksson, ritstjóri Frjálsrar Verslunar. Hann vill þó ekki meina að kreppan sé búin. „Gleymum því ekki að í hruninu féll landsframleiðsla um 12 prósent, á síðasta ári fór hún upp um 3 prósent svo við eigum töluvert eftir til að komast upp úr dalnum." Hann segir augljóst að mörg fyrirtæki eru byrjuð að hækka laun starfsmanna og meira svigrúm sé innan þeirra sérstaklega eftir miklar afskriftir. „Mér reiknast það til að það séu um 700 milljarðar sem er búið að afskrifa, og það er alveg augljóst að þegar búið er að afskrifa svona mikið þá standa þau betur að vígi og þau eiga auðveldara með að hækka launin og vonandi fara fyrirtækin líka að fjárfesta meira því það er það sem ég tel að vanti mest í íslenskt atvinnulíf um þessar mundir."
Mest lesið Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Innlent Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Innlent Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Innlent Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Brast í grát fyrir dómi: „Ég er þekktur fyrir að vera sonur mömmu“ Erlent Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Innlent Demókratar unnu orrustu í kjördæmastríðinu Erlent Konur í Framsókn sjá að sér Innlent Fleiri fréttir „Gamlar“ kempur kenndu bridge á Laugarvatni Mátti ekki kalla Samtökin '78 „hagsmunasamtök barnaníðinga“ Aldrei eins lítið í læknum og fuglunum er tekið að fækka Sorglegt að sonurinn sé aðeins tala á blaði Skjálftahrina í Mýrdalsjökli „Við sáum það að þetta hreyfði við forsætisráðherra“ Fór ekki á milli mála að Jón Þór ætlaði að drepa hana Þurfa aftur að rannsaka mál tveggja barna á Múlaborg Sorglegt að vera einungis tala á blaði Konur í Framsókn sjá að sér Stjórnin treystir Margréti Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Skila af sér breyttri Reykjavíkurleið í febrúar Framsóknarmenn takast hart á að tjaldabaki Mikil mótstaða íbúa á hitafundi um flutning kaffistofunnar Saka stjórnina um „óskhyggju, afneitun og ímyndaðan veruleika“ Grautfúl Kristrún og Vetrarhátíð hefst í kvöld Tíu tilkynnt um veikindi eftir að hafa borðað mat frá Vitatorgi Afturkalla endurvigtunarleyfi Brims vegna „stórfellds gáleysis“ Fimm prósent atvinnuleysi í lok árs 2025 Samningaviðræðum slitið og áframhaldandi samstarf Í-listans úr sögunni Margir sem þurfa að horfa eða hlusta til að sofna Úr fjölmiðlum í dýraverndarmál Fær áfram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert Stíga fram á Facebook, fordæma rektor og segja nóg komið Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Sjá meira