Nær 1600 utan lífeyrissjóðs 10. maí 2005 00:01
Samtals 1594 ellilífeyrisþegar fá engar greiðslur úr lífeyrissjóði, samkvæmt upplýsingum frá Tryggingastofnun ríkisins. Makar viðkomandi eru einnig utan lífeyrissjóðs. Þá eru 472 ellilífeyrisþegar hér á landi sem eru með minna en 5000 krónur í árstekjur. Þar af eru 387 eru algjörlega tekjulausir. Þarna er einungis um að ræða ellilífeyrisþega, ekki örorkulífeyrisþega. "Meðal þeirra sem fá engar lífeyrissjóðsgreiðslur eru það aldraðir einstaklingar að lífeyrissjóðirnir voru ekki einu sinni byrjaðir þegar þeir voru komnir á ellilífeyri," sagði Ágúst Þór Sigurðsson forstöðumaður framkvæmdastjóri lífeyristryggingasviðs TR. "Svo er hópar sem hefur unnið svart eða hjá sjálfum sér. Nefna má sem dæmi verktaka sem hafa ekki greitt í lífeyrissjóð." Ágúst sagði að þeir hópar sem fengju engar lífeyrissjóðsgreiðslur lifðu á bótum almannatrygginga. Hann kvaðst efast um að þeir lifðu á fjármagnstekjum, þótt það hafi ekki verið skoðað sérstaklega. "Þetta er fólk sem er með strípaðan ellilífeyri, tekjutryggingu og tekjutryggingarauka og fær hámarksgreiðslur hjá Tryggingastofnun. Einhleypingur fær um 93 þúsund í vasann eftir skatta. Hjón fá hvort um sig um 79 þúsund eftir skatta." Um þá 387 sem eru með alls engar tekjur sagði Ágúst Þór að framfærsla þeirra væri með sama hætti og hinna sem væru án lífeyrissjóðs. Þeir lifðu á strípuðum bótum almannatrygginga. "Um leið og menn fara að vinna, þótt ekki sé nema í litlum mæli fer tekjutryggingaaukinn að skerðast á fyrstu krónu sem lífeyrisþeginn vinnur sér inn," sagði Ágúst Þór. "Í lífeyrisuppgjörinu sem fram fór um síðustu áramót og miklar umræður spunnust um, var mjög eðlilegt að svona margir væru að fá annað hvort plús eða mínus út úr uppgjöri því það þarf svo lítið til að tekjutryggingatryggingaaukinn fari að hreyfast. Það þarf ekki annað en að lífeyrissjóðstekjur einstaklings hækki um 1000 krónur á mánuði. Þá er það strax orðnar um það bil 500 krónur í skerðingu, sem gerir tæpar 6000 krónur á ári. Þá er viðkomandi kominn inn í þennan hóp, þó ekki sé um stórar upphæðir að ræða."
Fréttir Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Sjá meira