Kvikmyndafræði kennd í HÍ 10. maí 2005 00:01
Til stendur að hefja kennslu í kvikmyndafræði við hugvísindadeild Háskóla Íslands í haust og hefur skólinn samið við Samskip um að styðja námið með því að kosta stöð kennara. Til að byrja með verður kvikmyndafræðin 30 eininga aukagrein á BA-stigi en stefnt er að því að byggja upp framhaldsnám í greininni á næstu árum, eftir því sem fram kemur í sameiginlegri tilkynningu frá Háskólanum og Samskipum. Styrkur Samskipa til Háskóla Íslands vegna kvikmyndafræðinámsins nemur 3,6 milljónum króna á næsta ári og var samningur þar að lútandi undirritaður í háskólaráðsherberginu í aðalbyggingu Háskólans í dag. Það gerðu Páll Skúlason rektor og Ólafur Ólafsson, starfandi stjórnarformaður Samskipa, að viðstöddum fulltrúum beggja samningsaðila. Innan bókmenntafræði- og málvísindaskorar í Háskóla Íslands hefur að verið boðið upp á nokkur kvikmyndanámskeið á síðustu árum en nú hefur verið ákveðið að stíga skrefi lengra og bjóða upp á kvikmyndafræði sem sjálfstæða grein frá og með næsta háskólaári. „Markmiðið með kennslu í kvikmyndafræði er meðal annars að varpa ljósi á þróun og sögu kvikmynda á Vesturlöndum og að nokkru leyti í öðrum heimshlutum að þjálfa stúdenta í að skilja og túlka kvikmyndir frá ýmsum tímum og ólíkum þjóðlöndum, og kynna helstu hugtök og vinnuaðferðir í kvikmyndafræði. Þróttmikið kennslu- og rannsóknastarf á þessu sviði mun í framtíðinni skila sér í betri kvikmyndamenningu hér á landi,“ segir Páll Skúlason rektor. „Þykir okkur vel við hæfi að íslenskt fyrirtæki í alþjóðlegum vöruflutningum styðji við bakið á og raunar leggi grunn að nýju fræðasviði hér á landi, fræðasviði sem lýtur að þeim listmiðli sem á hvað augljósastan hátt tengir saman íslenska og erlenda menningarheima.“
Fréttir Innlent Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Fjórir í lífshættu eftir lestarslys í Danmörku Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Fimm í lífshættu eftir lestarslysið Erlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Þeirri gulu misjafnt skipt á fyrsta degi sumars Veður Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Fleiri fréttir Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið Sjá meira