Meira lagt upp úr menntaskólaárum 12. febrúar 2015 11:00 Andrew Garfield hverfur á braut sem Pétur Parker en óvíst er hver tekur við af honum.
Fyrirtækið Sony Pictures ætlar að láta hinn næsta Pétur Parker eyða meiri tíma í menntaskólanum en hann gerði áður í þeim Spider-Man-myndum sem eru væntanlegar næstu árin. Midtown-menntaskólinn hefur áður komið við sögu í myndunum um köngulóarmanninn en núna stendur til að leggja meira upp úr sambandi hans við aðra nemendur, á sama tíma og hann berst við glæpi annars staðar. Menntaskólinn hefur einmitt haft mikið vægi í myndasögunum um Spider-Man. Blaðið Variety greinir frá því að margir leikarar hafi verið nefndir til sögunnar sem arftakar Andrews Garfield í aðalhlutverkinu, en hann tók á sínum tíma við hlutverkinu af Tobey Maguire. Á meðal þeirra eru Dylan O´Brien úr The Maze Runner og Logan Lerman úr myndunum um Percy Jackson. Stutt er síðan Lerman lék í stríðsmyndinni Fury á móti Brad Pitt.the Avengers Þór þrumuguð og kapteinn Ameríka í The Avengers.Einnig er ætlunin að ráða nýjan leikstjóra, en Marc Webb leikstýrði The Amazing Spider-Man og The Amazing Spider-Man 2. Sú síðarnefnda var verst sótt af þeim fimm Spider-Man-myndum sem Sony hefur framleitt. Þrátt fyrir það halaði hún inn 709 milljónum dala. Vegna hins slaka gengis hefur verið ákveðið að Sony Pictures og Walt Disney muni starfa saman við gerð Spider-Man. Samningurinn kveður á um að ofurhetjan gæti komið við sögu í væntanlegum Avengers-myndum. Líklegt er að hún komi fyrst við sögu í Captain America: Civil War sem kemur út á næsta ári en hún hefur hingað til aðeins verið hluti af Avengers-teiknimyndasögunum. Fyrirtækið Marvel er í eigu Walt Disney. Marvel hefur lengi viljað setja köngulóarmanninn í myndirnar sínar en eftir að Sony eignaðist réttinn á Spider-Man árið 1999 hefur fyrirtækið ekki mátt snerta á ofurhetjunni. Því hefur það ekki mátt búa til kvikmyndir byggðar á ævintýrum Péturs Parker, fyrr en núna.
Bíó og sjónvarp Mest lesið Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Bíó og sjónvarp Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Lífið Grætti nánast alla í athöfninni Lífið Krýndur tískukóngur fótboltans Tíska og hönnun Michael Byrne er látinn Bíó og sjónvarp Leikarapar selur í 101 Lífið Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Lífið Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Lífið Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Lífið Söngvari YMCA látinn Tónlist Fleiri fréttir Íslenskt Love Island gæti verið tekið upp á Möltu Michael Byrne er látinn Fyrsta stiklan úr mynd Eggers og Sjónar James Burrows látinn Laufey Lín er mætt til Springfield Ef meðferðarlotan beri ekki árangur verði hann ekki í næstu þáttaröð Tyra Banks kærir Netflix fyrir ærumeiðingar Ekki talað við Franco lengi og vill ekki vinna með honum aftur Þórður leikstýrir kvikmyndaútgáfu Dead by Daylight Margaret Kerry er látin Fann ástina í örmum snyrtifræðings frá Staffordshire Harbour rýfur þögnina Sigurjón Sighvatsson heiðraður í Locarno James Handy stunginn til bana af syni kærustu sinnar Biðst afsökunar á áratugagömlu gríni með „blackface“ Youtube-leikstjórar kaffærðu Stjörnustríði Sjá meira