Uppbótartíminn: Ekki hata leikmennina - hataðu grasið | Myndbönd 3. maí 2016 10:30
Fyrsta umferð Pepsi-deildar karla 2016 í knattspyrnu kláraðist í gær. Hverjir áttu góðan dag og hverjir áttu erfiðan dag? Hvað segir tölfræðin og hver var umræðan á Twitter? Vísir gerir hér upp umferðina á léttum nótum. Eyjamenn eru á toppnum eftir fyrstu umferðina en þeir tóku Skagamenn í kennslustund, 4-0, á Hásteinsvelli. Misjafnt var gengi nýliðanna því Þróttur fékk 3-0 skell heima eftir hetjulega baráttu gegn FH en Ólafsvíkingar sóttu sigur í Kópavoginn. Áhugamönnum um deildina var tíðrætt um gervigras eftir að horfa upp á vondan leik KR og Víkings en þrír leikir umferðarinnar fóru fram á gervigrasi og spiluðust vel.Umfjöllun og viðtöl úr öllum sex leikjum umferðarinnar:Valur - Fjölnir 1-2KR - Víkingur 0-0Stjarnan - Fylkir 2-0Breiðablik - Víkingur Ó.ÍBV - ÍA 4-0Þróttur - FHGóð umferð fyrir ...... Ólsara Það tók Ólafsvíkinga heilar níu umferðir að vinna fyrsta leikinn í deildinni þegar liðið kom í fyrsta skipti upp um deild og spilaði með þeim bestu fyrir þremur árum síðan. Þeir stóðu af sér orrahríð Blika í seinni hálfleik og skoruðu tvö gullfalleg mörk sem tryggðu nýliðunum sigurinn. Svona sigur gefur mönnum mikla trú inn í mótið en það er augljóslega mjög erfitt að vinna ekki fyrsta leikinn fyrr en um miðbik móts.... Þóri Guðjónsson Þórir byrjaði mótið af krafti í fyrra og skoraði fimm af sjö mörkum sínum í fyrri umferðinni. Eftir smá meiðsli hægðist verulega á honum í seinni umferðinni en hann er að stimpla sig inn sem einn af bestu framherjum deildarinnar. Tvö mörk í 2-1 sigri og síðara markið kosið það besta í umferðinni í Pepsi-mörkunum. Vonandi fyrir hinn hógværa Þóri er þetta byrjunin á einhverju stóru fyrir hann og Fjölni.... Team Gervigras Þeir sem vilja fá gervigras á alla velli brostu hringinn þegar þeir horfðu upp á hörmungaraðstæðurnar sem KR og Víkingi var boðið upp á í vesturbænum. Eftir að horfa á þrjá flotta og hraða fótboltaleiki á sléttu og góðu undirlagi á gervigrasi var varla hægt að senda boltann á milli á Alvogen-vellinum. Sama hvað gamli skólinn rígheldur í graslyktina virðist alltaf styttast í að hér verði allt undir gervigrasi. Eins og kemur fram í umræðunni á Twitter hér að neðan eru fótboltaáhugamenn virkilega farnir að pæla í gervigrasi eftir að horfa á fyrstu umferðina.Erfið umferð fyrir ...... Þjálfara í banni Tveir þjálfarar í deildinni; Arnar Grétarsson hjá Breiðabliki og Hermann Hreiðarsson hjá Fylki, voru í banni í fyrstu umferð Íslandsmótsins. Þeir þurftu báðir að horfa upp á lærisveina sína tapa úr stúkunni með aðstoðarþjálfarana að stýra liðunum. „Það er miklu erfiðara að vera í stúkunni,“ sagði Arnar Grétarsson við Vísi eftir tap Blika.... Blika Og talandi um Breiðablik. Silfurlið síðasta árs tapaði fyrir nýliðum Ólsara þrátt fyrir að fá nóg af færum til að skora. Jonathan Glenn byrjar mótið í tveggja leikja banni en liðið þurfti svo sannarlega á honum að halda í teignum. Markaskorun hefur reynst liðinu erfið í vetur og áframhald var á því. Tvær af skærustu stjörnum síðasta sumars; Oliver Sigurjónsson og Höskuldur Gunnlaugsson, áttu erfitt uppdráttar í leiknum.... Skagamenn Skagamenn sem styrktu sig ekkert fyrir mótið mættu Eyjamönnum sem voru með veskið á lofti og það voru Akurnesingar sem fengu vænan rassskell. Nýi markvörður Eyjamanna var frábær á meðan Árni Snær í marki Skagans varði varla skot og þrír nýir leikmenn skoruðu fyrir ÍBV á meðan Skaginn skoraði ekki mark. Þessi leikur er auðvitað alls enginn dómur yfir kaupstefnu ÍA en hlýtur að vera ákveðin áminning.Tölfræðin og sagan: *FH hélt hreinu í fyrstu umferð í fyrsta sinn í átta ár eða síðan í 1. umferð 2008. *Síðastur FH-inga á undan Lennon til skora fyrsta mark Íslandsmótsins var Atli Viðar Björnsson í leik á móti KR 2004. *Atlarnir (Viðar Björnsson og Guðnason) og Lennon skoruðu aldrei allir í sama leik í Pepsi-deildinni sumarið 2016. *Eyjamenn urðu fyrsta liðið í ellefu ár til að skora þrjú mörk í fyrsta hálfleik tímabilsins eða síðan Valsmenn skoruðu þrjú mörk hjá Grindavík í fyrri hálfleik í 1. umferðinni 2005. *Eyjamenn hafa nú leikið 25 deildarleiki í Eyjum í röð undir stjórn Bjarna Jóhannssonar án þess að tapa (22 sigrar og 3 jafntefli) *Skagamenn fengu á sig fjórum sinnum fleiri mörk í fyrsta leik sumarsins 2016 (4) en í síðustu fimm leikjum liðsins sumarið 2015 (1). *Gunnleifur Gunnleifsson var búinn að halda hreinu í 933 mínútur í fyrri hálfleik í Pepsi-deildinni þegar Þorsteinn Már Ragnarsson skoraði hjá honum. *Síðasta lið á undan Ólafsvíkingum til að skora í báðum hálfleikjum á móti Blikum voru KR-ingar 11. maí í fyrra. *Ólafsvíkur-Víkingar voru 60 dögum fljótari að vinna fyrsta leik sinn á öðru tímabili félagsins í efstu deild en á því fyrsta fyrir þremur árum. *Ingvar Þór Kale hefur spilað fimm leiki í 1. umferð Pepsi-deildarinnar frá 2010 (með Val, Víking og Breiðabliki) og verið í tapliði í þeim öllum. Ingvar hefur fengið á sig 11 mörk í þessum fimm tapleikjum en í einum þeirra fékk hann rautt spjald eftir 19 mínútur. *Frá árinu 2003 hafa lið Ólafs Jóhannessonar aðeins náð í 1 stig af 9 mögulegum (11 prósent) þegar þau spila á heimavelli í 1. umferð í úrvalsdeildinni og 12 stig af 12 mögulegum (100 prósent) þegar þau spila á útivelli í 1. umferð í úrvalsdeildinni. *Þórir Guðjónsson er búinn að skora í öllum þremur deildarleikjum sínum á Hlíðarenda síðan að hann fór frá Val (4 mörk í 3 leikjum). *Veigar Páll Gunnarsson skoraði einu marki meira á fyrstu 17 mínútum sínum í Pepsi-deildinni 2016 en í öllum leikjum sínum í Pepsi-deildinni 2015. *Sveinn Sigurður Jóhannesson hefur haldið Stjörnumarkinu hreinu í 5 af 6 leikjum sínum í Pepsi-deildinni. Sveinn Sigurður hefur aðeins fengið á sig 1 mark í þessum 6 leikjum. *Þetta er í fyrsta sinn í heilan áratug sem KR-ingar ná ekki að skora í fyrsta leik sínum á Íslandsmótinu. *Víkingar héldu síðast hreinu í útileik á móti KR 7. júlí 1984 en sá leikur fór fram á Laugardalsvellinum.Skemmtilegir punktar úr Boltavaktinni:Ingvi Þór Sæmundsson á Samsung-vellinum: „Hemmi vinkaðu!" syngja Silfurskeiðungar. Hann hlýðir á endanum.Kristinn Páll Teitsson á Hásteinsvelli: „Geir Þorsteinsson, framkvæmdarstjóri KSÍ er mættur til að fylgjast með fyrsta leik ÍBV í sumar. Hef ekki enn séð ljósu lokkana hans Heimis Hallgrímssonar.“Hæstu og lægstu einkunnir umferðarinnar: Þórir Guðjónsson, Val - 8 Simon Smidt, ÍBV - 8 Aron Bjarnason, ÍBV - 8 Davíð Þór Viðarsson, FH - 8 Gunnar Nielsen, FH - 8 Veigar Páll Gunnarsson, Stjörnunni - 8 Ingimundur Níels Óskarsson, Fylki - 3 Andrés Már Jóhannesson, Fylki - 3 Albert Brynjar Ingason, Fylki - 3 Þórður Þorsteins Þórðarson, ÍA - 3 Ármann Smári Björnsson, ÍA 3 Jón Vilhelm Ákason, ÍA 3Umræðan á #pepsi365Fyrsta umferð í pepsi.. Don't hate the player hate the gras #pepsi365#fotboltinet#gervigras — Bjarni Jakob (@bjjakobg) May 3, 2016Hvar var Kale þegar útsparkið var tekið, kannski of aftarlega? #pepsi365 — Einar Hjörleifsson (@Einar_Hjorleifs) May 2, 2016Það er ekki hægt að loka augunum gagnvart gervigrasvæðingunni. Vandræðalegt að horfa á KR-Víking #gervigrasasap#gæði#pepsi365 — Birkir Björnsson (@Birkir14) May 2, 2016En styttist í næsta bann hjá Hemma Hreiðars #hemmadeildin#pepsi365 — Gunnar Valur Arason (@ArasonValur) May 2, 2016Er ekki bekkurinn hjá Stjörnunni í kvold sá flottasti í sögu Pepsi? #pepsi365 — Ásgrímur H. Einars (@sirryaki) May 2, 2016Viktor hefði alltaf skorað á gervigrasi, þetta tún er ekki boðlegt #gervigrasvagninn#búumáíslandi#pepsi365 — Hallgrimur Dan (@hallidan) May 2, 2016Hvar stöndum við í gras vs. gervigras eftir þessa fyrstu umferð? Gæðamunur á milli leikja eftir því hvaða undirlagi er spilað á #pepsi365 — Vigfús Arnar Jósefss (@VigfusArnar) May 2, 2016Skyndilega er KR orðið svolítið langt a eftir. Ljótur völlur, gömul stúka og aðstöðuleysi. Hriktir i stoðum stórveldisins #Pepsi365 — Benedikt Bóas (@benediktboas) May 2, 2016Markvörður ÍBV minnir mig á Hans Segers fyrrverandi markmann Wimbledon! #playmaker#Pepsi365 — Garðar Gunnar (@gardargunnar) May 2, 2016Slæmir vellir hjá UBK og KR. Er gervigrasið ekki bara málið? #pepsi365 — Ásgrímur H. Einars (@sirryaki) May 2, 2016Enn er fólk að bera saman eldri grasvelli og nýlagða plastvelli. KR völlur var seinast lagður grasi 1999 @HoddiMagnusson#pepsi365 — Kristján Gudmundsson (@knottur) May 3, 2016Hef enga trú á að Stórveldið fari í plast, þá væri nú fokið í flest Skjól #pepsi365 — Kristján Gudmundsson (@knottur) May 3, 2016Flottasta mark 1. umferðar: Þórir Guðjónsson Atvik 1. umferðar: Mark Kenans Turudija Öll mörkin úr 1. umferðinni:
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Hólmbert fluttur á sjúkrahús Fékk tvö þung höfuðhögg í leiknum gegn Víkingi í kvöld. 2. maí 2016 22:03 Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: KR - Víkingur 0-0 | Bragðdauf byrjun í vesturbænum Lélegur völlur og nokkur vindur settu svip sinn á leik KR og Víkings í kvölds sem var ekki mikið fyrir augað. 2. maí 2016 22:15 Sjáðu fyrsta þátt Pepsi-markanna Allir leikir fyrstu umferðar nýja tímabilsins í Pepsi-deildinni krufin til mergjar. 3. maí 2016 07:50 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Fjölnir 1-2 | Þórir skaut Val í kaf Þórir Guðjónsson skoraði bæði mörk Fjölnis í 1-2 sigri á Val á útivelli í 1. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. 1. maí 2016 22:30 Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Stjarnan - Fylkir 2-0 | Veigar gerði gæfumuninn Veigar Páll Gunnarsson tryggði Stjörnunni öll þrjú stigin gegn Fylki í leik liðanna í 1. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Lokatölur 2-0, Stjörnunni í vil. 2. maí 2016 22:00 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - Víkingur Ó. 1-2 | Tvö glæsimörk í sigri nýliðanna Víkingur Ólafsvík gerði góða ferð í Kópavoginn og vann 1-2 sigur á Breiðabliki í 1. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. 1. maí 2016 21:45 Gary: Ekkert vit í að spila á þessu grasi Gary Martin segir að það sé hægt að spila mun betri fótbolta á gervigrasi en á KR-vellinum í kvöld. Það hafi bitnað á gæðum leiksins. 2. maí 2016 21:44 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - ÍA 4-0 | Eyjamenn byrjuðu mótið með látum ÍBV byrjaði tímabilið undir stjórn Bjarna Jóhannssonar af krafti með 4-0 sigri á ÍA í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í dag. 1. maí 2016 19:45 Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Þróttur - FH 0-3 | Meistararnir byrja vel FH hóf titilvörn sína í Pepsi-deild karla með 0-3 útisigri á Þrótti í Laugardalnum í dag. 1. maí 2016 17:45 Mest lesið Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Heimir rýfur þögnina og þakkar fyrir stuðninginn Fótbolti „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn Forsætisráðherra Írlands styður athugasemdir Heimis Fótbolti Hvernig á að leysa varnarleikinn? Fótbolti Barcelona þarf að víkja frá Nývangi aftur Fótbolti Higuain rekinn fyrir kynjamisrétti við dómara Fótbolti Fleiri fréttir Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Byrjaðar að spila sem Breiðablik í EA FC: „Þetta er risa heimur“ Vill hverfa frá núverandi fyrirkomulagi í Bestu deildinni „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Rúnar Már að hætta: „Hugurinn er tilbúinn að halda áfram en líkaminn segir stopp“ Aron hafi reitt Víkinga til reiði: „Ætla ekki að gefa upp hvað fór okkar á milli“ Sowe til KR ef hann stenst læknisskoðun Sjáðu öll mörk gærdagsins úr Bestu deildinni Skotið á Aron sem sér ekki eftir neinu Gaui Þórðar opnar sig um veikindi: „Erfiðir dagar, mánuðir og vikur“ „Hugsa að ég geri bara ekki rassgat“ Uppgjörið: Keflavík - Fram 2-2 | Stig sem gerir ekki mikið fyrir bæði lið Uppgjörið: ÍA - Breiðablik 4-1 | Skítlétt á Skaganum Uppgjörið: FH - Stjarnan 5-2 | Heimamenn kláruðu dæmið í fyrri hálfleik Uppgjörið: ÍBV - Valur 1-1 | Grátlegt jafntefli hjá Eyjamönnum Blikakonur með í tölvuleik og brjóta blað „Ég hef ekki séð svona áður hjá neinum leikmanni“ Skolað í burtu úr Vesturbæ en skáluðu hjá Audda Blö „Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ Sjáðu markið sem kom Þrótti í Bestu deildina „Klúbbur sem ætti að geta verið með bestu klúbbum landsins“ KA – Þór 3-0 | Sendu erkifjendurna í fallsæti með lífsnauðsynlegum sigri Þróttur R. - Fylkir 1-0 | Þróttarar upp í Bestu deild eftir tíu ára bið „Er þetta ekki ástæðan fyrir því að menn borga sig inn?“ Uppgjörið: Valur - Þór/KA 0-1 | Margrét tryggði Þór/KA dýrmæt stig á Hlíðarenda „Hef engan smekk fyrir því hvernig þeir haga sér“ Hvar er reiði Sölvi? „Þarf mjög mikið til að fá mig til að missa kúlið“ Læti í göngunum eftir leik Uppgjörið: KR - Víkingur R. 1-2 | Fimm rauð og Víkingar meistarar Sjá meira
Hólmbert fluttur á sjúkrahús Fékk tvö þung höfuðhögg í leiknum gegn Víkingi í kvöld. 2. maí 2016 22:03
Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: KR - Víkingur 0-0 | Bragðdauf byrjun í vesturbænum Lélegur völlur og nokkur vindur settu svip sinn á leik KR og Víkings í kvölds sem var ekki mikið fyrir augað. 2. maí 2016 22:15
Sjáðu fyrsta þátt Pepsi-markanna Allir leikir fyrstu umferðar nýja tímabilsins í Pepsi-deildinni krufin til mergjar. 3. maí 2016 07:50
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - Fjölnir 1-2 | Þórir skaut Val í kaf Þórir Guðjónsson skoraði bæði mörk Fjölnis í 1-2 sigri á Val á útivelli í 1. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. 1. maí 2016 22:30
Umfjöllun, viðtöl, myndir og einkunnir: Stjarnan - Fylkir 2-0 | Veigar gerði gæfumuninn Veigar Páll Gunnarsson tryggði Stjörnunni öll þrjú stigin gegn Fylki í leik liðanna í 1. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Lokatölur 2-0, Stjörnunni í vil. 2. maí 2016 22:00
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Breiðablik - Víkingur Ó. 1-2 | Tvö glæsimörk í sigri nýliðanna Víkingur Ólafsvík gerði góða ferð í Kópavoginn og vann 1-2 sigur á Breiðabliki í 1. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. 1. maí 2016 21:45
Gary: Ekkert vit í að spila á þessu grasi Gary Martin segir að það sé hægt að spila mun betri fótbolta á gervigrasi en á KR-vellinum í kvöld. Það hafi bitnað á gæðum leiksins. 2. maí 2016 21:44
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: ÍBV - ÍA 4-0 | Eyjamenn byrjuðu mótið með látum ÍBV byrjaði tímabilið undir stjórn Bjarna Jóhannssonar af krafti með 4-0 sigri á ÍA í fyrstu umferð Pepsi-deildarinnar í dag. 1. maí 2016 19:45
Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Þróttur - FH 0-3 | Meistararnir byrja vel FH hóf titilvörn sína í Pepsi-deild karla með 0-3 útisigri á Þrótti í Laugardalnum í dag. 1. maí 2016 17:45