Menning

Bein útsending: Tídægra í flutningi Maríönnu Clöru

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Maríanna Clara Lúthersdóttir er dramatúrg í Borgarleikhúsinu. Hún les sögu dagsins.
Maríanna Clara Lúthersdóttir er dramatúrg í Borgarleikhúsinu. Hún les sögu dagsins. Borgarleikhúsið

Næst á dagskrá hjá Borgó í beinni er lestur á skemmtisögu úr Tídægru eftir hinn ítalska Giovanni Boccaccio. Lesin verður ein saga úr skemmtisögusafninu í hádeginu hvern miðvikudag meðan á samkomubanninu stendur. 

Maríanna Clara Lúthersdóttir dramatúrg í Borgarleikhúsinu les í dag og hefst flutningur klukkan 12:30.

Tídægra, eða Decameron, er skrifuð í kjölfar þess að plágan mikla gekk yfir Flórens árið 1348. Yfir helmingur borgarbúa hafði fallið í valinn áður en yfir lauk og á rammasaga bókarinnar sér stað í farsóttinni miðri. Hópur ungs fólks ákveður að yfirgefa Flórens og flýja í sumarhöll fyrir utan bæinn með það fyrir augum að vera í einangrun þar til sóttin réni. Til að stytta sér stundir segja þau hvert öðru sögur – tíu sögur á dag í þá tíu daga sem þau dvelja í sumarhöllinni.

Þar sem Boccaccio sjálfur upplifði pláguna þykir Tídægra í senn vera ómetanleg heimild um lífið á tímum Svarta dauða sem og safn leikandi léttra og skemmtilegra smásagna - sem þó eru ekki án brodds því höfundurinn deilir á hræsni, kirkjuna og jafnvel kúgun kvenna.

Uppfært. Útsendingunni er lokið en horfa má á upplesturinn í spilaranum hér að neðan.


Tengdar fréttir

Bein útsending: Allt um söngleikina um Bubba og Elly

Fyrirlestri Ólafs Egils Egilssonar leikstjóra er streymt beint hér á Vísi klukkan 12 í dag. Þetta er annað beina streymið frá Borgarleikhúsinu á meðan á samkomubanninu stendur en leikhúsið ætlar að bjóða Íslendingum upp á þétta dagskrá næstu vikur.

Bein útsending: Skattsvik Development Group

Sýningunni Skattsvik Development Group er streymt beint á Vísi. Þetta er fyrsta beina streymið frá Borgarleikhúsinu en leikhúsið ætlar að hafa þétta dagskrá á meðan á samkomubanninu stendur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×