Innlent

Geta ekki og vilja ekki veita fámennum hóp meiri hækkanir

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga. vísir/Baldur

Framkvæmdastjóri Eflingar segir kaldranalegt ef sveitarfélög eru að nýta kórónuveiruna sem vopn í kjaraviðræðum og freista þess að fá aðgerðum frestað. Formaður landssambands sveitarfélaga segir ekki koma til greina að semja um meiri hækkanir en felast í lífskjarasamningnum.

Samninganefndir Eflingar og Sambands íslenskra sveitarfélaga áttu í morgun fund hjá ríkissáttasemjara eftir fimm daga hlé á viðræðum.

Framkvæmdastjóri Eflingar segir fundinn hafa gengið „afar illa".

„Þar kom fram höfnun á því að gera sambærilegan samning eins og þann sem við hjá Eflingu erum búin að gera við Reykjavíkurborg og íslenska ríkið," segir Viðar Þorsteinsson.

Hann segist ekki geta borið lakari samning, en nýgerða samninga við ríki og borg, undir félagsmenn sem starfi í sömu störfum og á svipuðu atvinnusvæði. Sérstök leiðretting á lægstu launum, líkt og felst í þeim, virðist ekki nú í boði.

„Það sætir furðu að samband íslenskra sveitarfélaga, eitt þessara þriggja opinberru aðila sem við semjum við, skuli neita að gera þetta."

Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar.vísir/Vilhelm

Formaður sambands íslenskra sveitarfélaga segir einungis hækkanir samkvæmt lífskjarasamningi koma til greina.

„Hjá sveitarfélögunum vinna þúsundir starfsmanna og við megum ekki, viljum ekki og getum ekki samið við fámenna hópa um eitthvað allt annað en heildin hefur þegar samið um," segir Aldís Hafsteinsdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Fjórir grunnskólar lokaðir

Verkfallið hefur nú staðið yfir í viku og hefur mest áhrif í Kópavogi. Þar hefur fjórum grunnskólum hefur verið lokað þar sem skólarnir eru ekki þrifnir í verkfalli. Það eru Kársnesskóli, Kópavogsskóli, Álfhólsskóli og Salaskóli og í þeim eru um 2.100 nemendur. Þá eru þrír leikskólar lokaðir.

Undanþágubeiðnum um þrif á grunnskólum með vísan til kórónuveirunnar hefur verið hafnað. „Enda teljum við að sveitarfélögin hafi það í hendi sér að loka þeim stofnunum," segir Viðar.

Viðar spyr hvort sambandið sé að tefja viðræður í ljósi stöðunnar í þjóðfélaginu.

„Mér fyndist það ansi kaldranalegt ef sveitafélögin eru mögulega að nýta sér þess stöðu sem nú er komin upp til að hlunnfara þetta fólk um eðlilegar kjarabætur," segir Viðar.

Aldís hafnar þessu. „Þessi deila hefur verð í hnút í allt of langan tíma og það hefur ekkert með þessa stöðu að gera," segir hún.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×