Ron­aldo skoraði tví­vegis er Juventus pakkaði Barcelona saman

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Ronaldo leiddist ekki að skora tvívegis í kvöld.
Ronaldo leiddist ekki að skora tvívegis í kvöld. EPA-EFE/Alberto Estevez

Juventus bætti heldur betur upp fyrir tapið á heimavelli gegn Barcelona fyrr á þessari leiktíð. Cristiano Ronaldo skoraði tvívegis í öruggum 3-0 sigri Ítalíumeistaranna sem tryggðu sér toppsæti G-riðils í leiðinni.

Það tók gestina aðeins þrettán mínútur að komast yfir en þá skoraði Ronaldo úr vítaspyrnu. Weston McKennie bætti við öðru marki Juventus á 20. mínútu og staðan 2-0 gestunum í vil í hálfleik.

Snemma í síðari hálfleik fór knötturinn í hendi Clement Lenglet innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Ronaldo fór aftur á punktinn og skoraði af öryggi. Var þetta 14. mark Ronaldo í síðustu 13 leikjum á Nou Camp, heimavelli Barcelona.

Staðan orðin 3-0 og reyndust það lokatölur leiksins.

Var þetta í fyrsta skipti sem Ronaldo og Lionel Messi mætast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu. Portúgalinn hafði betur í kvöld og fer eflaust sáttur á koddann.


Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira