Lífið

Stjörnulífið: „Verðleikar mínir skilgreinast ekki eftir útlitinu“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Alltaf mikið um að vera hjá stjörnunum. 
Alltaf mikið um að vera hjá stjörnunum. 

Stjörnulífið er liður á Vísi en þar verður farið yfir það helsta sem þekktir Íslendingar hafa verið að gera undanfarna daga og jafnvel deila því með fylgjendum sínum.

Víkingur Heiðar Ólafsson píanóleikari fagnaði verðlaunum hjá Opus klassik annað árið í röð fyrir píanóplötu ársins. 

„Þetta er mikill heiður, sérstaklega núna þegar upptökur spila enn stærra hlutverk en áður í að koma tónlist til fólksins enda svo mörg tónlistarhús lokuð,“ segir Víkingur Heiðar.

„Á erfiðum tímum hjálpar að muna að gullöld stendur yfir í klassískri tónlist - aldrei áður hafa jafnmargir hlustað á klassík eins og sjá má á himinháum streymistölum. Það gefur mér von um bjartsýni fyrir komandi ár.“

Tómas Guðbjartsson hjartalæknir skellti sér vestur á firði þar sem fé var smalað. Sumar kindurnar fengu far á Saga Class eins og Tómas kemst að orði með þessari mynd að neðan af fé og smölum.

View this post on Instagram

Eftirlegukindum smalað á Saga Class

A post shared by Tomas Gudbjartsson (@tomasgudbjartsson) on

Sölvi Tryggvason skellti sér í í fjallgöngu í þrígang um helgina, þrisvar á þremur dögum. 

Crossfit-stjarnan Sara Sigmundsdóttir sýnir frá nokkrum æfingum á Instagram-síðu sinni. 

Útivist gerir mikið fyrir Ástrósu Traustadóttur dansara á tímum Covid. Hún skaust upp á Úlfarsfell með pabba sínum. 

„Viðurkenni samt að það þurfti mikið til að koma mér af stað í dag, en það gerir svo ótrúlega mikið fyrir mann að fara út í náttúruna og hreyfa sig á þessum skrítnu tímum!“ segir Ástrós.

Ísdrottningin Ásdís Rán býður haustið og veturinn velkominn. 

„Loksins get ég farið að klæða mig í vetrarfötin. Ísdrottningin var farin að bráðna í hitanum síðustu mánuði,“ segir Ásdís.

Íþróttafréttakonan Kristjana Arnarsdóttir nýtur lífsins á Spáni ásamt kærastanum Haraldi Franklín Magnússyni en hann er atvinnumaður í golfi og ákvað Kristjana að ferðast með honum um álfuna næstu mánuði.

Birgitta Haukdal tók lagið með Pollapönki í auglýsingu Íslandsbanka um helgina. Dóttir hennar söng líka með.

Nýfæddi sonur Fjallsins, Hafþórs Júlíusar Björnssonar kraftajötuns, elskar nýja dótið sitt. Það sést á myndbandinu sem aflraunakappinn birti. 

Kristbjörg Jónasdóttir fæddi á dögunum sitt þriðja barn þegar sonur hennar og Arons Einars Gunnarssonar kom í heiminn. Hún sýnir hvernig líkami hennar breyttist á einni viku. 

View this post on Instagram

I have said it before and I’ll say it again... How amazing is the womens body?!? _ Not only that we are able to grow a little human inside us but also the recovery after giving birth, that’s no walk in the park!! _ I remember after having Oliver how clueless I was about giving birth and the first weeks after. I thought I would literally be on cloud nine with my baby and my husband taking it all in our stride and enjoying every minute of it.... Well, Little did I know .. _ Contractions, the burn feeling pushing the baby out, stitches after tearing, hemorrhoids, the emptiness feeling in your tummy after, the fact you still look 30 weeks pregnant walking out of the hospital. Many sleepless nights, hormones all over the place, the baby blues not to mention breastfeeding ! Sore boobs - it’s a real thing!! _ I think that is something we dont talk about a lot and I think a lot of women feel a little bit alone during that time because it seems to be something to be ashamed to talk about. At least I felt like that. _ We are all different and we all experience it in a different way but I think we can all agree that even though giving birth and the weeks after might not be the most glamorous thing BUT on the flip side it is the most amazing thing that we are able to experience and a privilege 🙏🏼 and I am truly grateful _ Us women are simply amazing!

A post shared by 🌟Kris J🌟 (@krisjfitness) on

Sævar Helgi Bragason stjörnurfræðiáhugamaður og fjölmiðlamaður birti fallegar myndir af himninum sem teknar voru við Hótel Rangá um helgina.

Áslaug Arna dómsmálaráðherra skellti sér í fjallgöngu eins og margir virðast stunda um þessar mundir. 

 Bleikur fer Sunnevu Einars heldur betur vel eins og sést á þessum myndum. 

View this post on Instagram

Pink 💗

A post shared by Sunneva Eir Einarsdóttir 🦋 (@sunnevaeinarss) on

 Fyrsta og nýjasta prófílmyndin af Birni Inga á Facebook. 

View this post on Instagram

Fyrsta og svo nýjasta prófílmyndin.

A post shared by Björn Ingi Hrafnsson (@bjorningi) on

Linda Pétursdóttir fegurðardrottning birtir mynd af sér með dóttur sinni. Hún segir móðurhlutverkið hennar stærsta verkefni í lífinu. Það sé tilgangur hennar á jörðu.

„Ég er kraftmikil kona og verðleikar mínir skilgreinast ekki eftir útlitinu mínu,“ segir Camilla Rut samfélagsmiðlastjarna í færslu á Instagram. Skýr og eðlileg skilaboð. 

 Birgitta Líf Björnsdóttir markaðsstjóri World Class er heilsuhraust og hamingjusöm. 

View this post on Instagram

healthy & happy 🎈

A post shared by Birgitta Líf Björnsdóttir 🤍 (@birgittalif) on

Fanney Ingvarsdóttir viðraði fjörutíu vikna bumbuna. 

View this post on Instagram

40+ vikna bumba viðruð. 🤍

A post shared by Fanney Ingvarsdóttir (@fanneyingvars) on

Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen tóku lagið með Helga Björns í þætti þess síðastnefnda.

Samfélagsmiðlastjarnan Hildur Sif Hauksdóttir birti fallega myndir á Instagram-reikningi sínum og skrifar við myndirnar: „Take away mission“

View this post on Instagram

take away mission

A post shared by hildur sif hauks (@hildursifhauks) on

Skemmtikrafturinn Steindi hafði ástæðu til að fagna um helgina.  

„Jásko! Haldiði ekki bara að vampírublóðbaðsmeistaraverkið Þorsti hafi verið að landa tveimur svona styttum á stærstu horrorhátíðinni í USA Screamfest! Best special effects make up - Geir Njarðarson. Best visual effects - Atli Þór Einarsson,“ segir Steindi.

„Þetta er auðvitað magnað stuð en ef þið viljið horfa á meistarastykkið mæli ég með því að byrja á því að horfa á þættina, Góðir Landsmenn.“

Móeiður Lárusdóttir fyrirsæta elskar að vera mamma. Hún er húðflúr á handleggnum til áminningar um það.

View this post on Instagram

Besta hlutverkið 🤍

A post shared by Móeiður Lárusdóttir (@moeidur) on

Andrea Sigurðardóttir þakkar fyrir afmæliskveðjurnar um helgina. Andrea er orðin 27 ára.

Magni Ásgeirsson, Matti Matt og Jónsi mættu til Ingós í þáttinn Í kvöld er gigg á föstudagskvöldið. Þar var ekki sungin vitleysan.

View this post on Instagram

Í kvöld er gigg! Ertu að horfa á stöð2?

A post shared by Magni Ásgeirsson (@magniasgeirs) on

Binni Löve birtir mynd af sér sem ætti heima í fegurðarsamkeppni. 

Ljósmyndarinn og áhrifavaldurinn Ása Steinarsdóttir fjárfesti í sendiferðabíl sem hún hefur innrétt sem húsbíl ásamt kærastanum sínum. Næstu mánuði ætla þau að ferðast saman og njóta lífsins. Ferðin hefst í Svíþjóð.

Áhrifavaldurinn Thelma Guðmundsdóttir birti fallega óléttumynd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×