Körfubolti

Einn af lykilmönnum Miami Heat var í æfingabúðum hér á landi árið 2015

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Duncan Robinson sést hér að dekka LeBron James í úslitaeinvígi Los Angeles Lakers og Miami Heat.
Duncan Robinson sést hér að dekka LeBron James í úslitaeinvígi Los Angeles Lakers og Miami Heat. Getty/ Douglas P. DeFelice

Hinn 26 ára gamli Duncan Robinson fór mikinn með liði Miami Heat í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í ár. Liðið fór alla leið í úrslit þar sem það beið lægri hlut gegn Los Angeles Lakers í sex leikjum. 

Robinson var til að mynda stór ástæða þess að Heat vann fimmta leik liðanna í úrslitum og minnkaði muninn í einvíginu í 3-2 er hann skoraði 26 stig og Heat vann þriggja stiga sigur, 111-108.

Chris Caird, aðalþjálfari Selfoss sem leikur í 1. deild karla, vakti athygli á því í dag að áðurnefndur Robinson hefði mætt í æfingabúðir hér á landi fyrir fimm árum síðan. Nánar tiltekið á Selfossi.

„Nokkrir af þeim sem mættu í æfingabúðir á Selfossi árið 2015. Sum ykkar þekkja ef til vill leikmanninn í rauðu hettupeysunni. Hann getur skotið boltanum ágætlega,“ segir Caird á Facebook-síðu sinni.

Some of the campers from Selfoss basketball camp in 2015. You might recognise the player in the red hoody. He can shoot it a lil bit!

Posted by Chris Caird on Tuesday, October 13, 2020

Robinson skilaði að meðaltali 12 stigum í úrslitakeppninni og flest þeirra komu fyrir aftan þriggja stiga línuna. Var skotnýting hans þar 40 prósent.

Saga Robinson er svipuð og Alex Caruso sem spilaði stóra rullu í liði Lakers á tímabilinu. Robinson var ekki valinn í nýliðavalinu 2018 en fékk á endanum samning hjá Heat vegna fjölda meiðsla í leikmannahópi liðsins haustið sama ár.

Eitthvað sem Heat sér ekki eftir í dag en Robinson hefur sannað sig sem ein af betri „skyttum“ NBA-deildarinnar.

Robinson hleður í þriggja stiga skot án þess að Rajon Rondo fá rönd við reist.Sam Greenwood/Getty Images

Tengdar fréttir

Brady sendi LeBron hamingjuóskir

Hamingjuóskum hefur rignt yfir lið Los Angeles Lakers eftir að þeir urðu NBA-meistarar í nótt og þá sérstaklega LeBron James.

Butler magnaður er Miami hélt sér á lífi | Myndbönd

Miami Heat lagði Los Angeles Lakers í fimmta leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta. Staðan þar með 3-2 í einvíginu og Miami á enn möguleika þökk sé ótrúlegri frammistöðu Jimmy Butler.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×