Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2026 22:21 Natasha Cloud (til vinstri) gagnrýndi þá sem köstuðu kynlífsleikföngum inn á völlinn í leik Chicago Sky og Golden State Valkyries. getty/Michael Reaves Gera þurfti hlé á leik Chicago Sky og Golden State Valkyries í WNBA-deildinni eftir að kynlífsleikföngum var kastað inn á völlinn. Þetta er í annað sinn í vikunni sem þetta gerist.
Í 3. leikhluta í leik Sky og Valkyries í gær var nokkrum kynlífsleikföngum kastað inn á gólfið. Natasha Cloud, leikmaður Sky, sagði að þeir sem framkvæmdu þennan gjörning væru furðulegir og asnalegir í þokkabót. „Þetta segir meira um baráttuna innra með þessum einstaklingi en það mun nokkrum sinnum segja um hópinn,“ sagði Cloud. „Mennirnir sem gera þetta eru aumir, gríðarlega aumir. Og þetta segir mikið um hvaða augum þú lítur konur.“ Þetta gerðist einnig í viðureign Atlanta Dream og Los Angeles Sparks í fyrradag. Þá var kynlífsleikfangi kastað inn á völlinn í 3. leikhluta þegar Park Ji-hyun, leikmaður Sparks, bjó sig undir að taka vítaskot. Maðurinn sem kastaði kynlífsleikfanginu inn á völlinn hefur verið dæmdur í lífstíðarbann frá WNBA. Á síðasta tímabili komu sex svipuð atvik upp í leikjum í WNBA. Hópurinn sem lýsti þessu á hendur sér sagðist myndu halda áfram að trufla leiki í WNBA til að mótmæla stefnu deildarinnar varðandi trans íþróttafólk. Engar trans konur eru í WNBA en umræðan um þær hefur verið áberandi að undanförnu, sérstaklega eftir ummæli Sophies Cunningham, leikmanns Indiana Fever. Hún er mótfallin þátttöku trans íþróttafólks í kvennaflokki. „Ég vil verja ungar stúlkur í búningsklefanum og í íþróttum sem eiga ekki að þurfa að keppa við karla. Ég var spurð spurningar og það var bara þannig. Ég var ekki að reyna að koma með yfirlýsingu,“ sagði Cunningham.
WNBA Mest lesið Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport „Þrjátíu og sjö ára andsetinn karlmaður í Vesturbænum“ Íslenski boltinn „Ég var hálfviti fyrir að hafa ekki verið með hjálm“ Sport Draumur strákanna brostinn og stelpunum skipað í ójafna leiki Íslenski boltinn Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Heimir og leikmenn sitji eftir í súpunni: „Vandi á höndum“ Fótbolti Vaknaði við skilaboð frá nýja þjálfaranum Fótbolti Öll spjót beinast að Írum og Heimi Fótbolti Einar verulega ósáttur: „Mér finnst þetta bara galin ummæli“ Handbolti „Stundum ertu með hálfvita sem þjálfara“ Sport Fleiri fréttir Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Sjá meira