Menning

Ragn­heiður hlaut Bók­mennta­verð­laun Tómasar Guð­munds­sonar

Atli Ísleifsson skrifar
Ragnheiður Lárusdóttir tók við verðlaunaskjali og blómvendi við styttu skáldsins Tómasar Guðmundssonar fyrr í dag.
Ragnheiður Lárusdóttir tók við verðlaunaskjali og blómvendi við styttu skáldsins Tómasar Guðmundssonar fyrr í dag. Reykjavíkurborg

Ragnheiður Lárusdóttir tók í dag við Bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar 2020 fyrir handrit sitt að ljóðabókinni 1900 og eitthvað.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að bókin, sem sé fyrsta bók höfundar, komi út í dag Ekki var um hefðbundna verðlaunaafhendingu að ræða en verðlaunahafinn, Ragnheiður Lárusdóttir, tók við verðlaunaskjali og blómvendi við styttu skáldsins Tómasar Guðmundssonar fyrr í dag. Er verðlaunaféð ein milljón krónur.

Sérstakan stað í hjörtum Reykvíkinga

Haft er eftir Degi B. Eggertssyni borgarstjóra að bókmenntaverðlaun Tómasar eigi alltaf sérstakan stað í hjörtum Reykvíkinga en á hverju ári sé skilað inn fjölda handrita til dómnefndar sem endurspegli á hverjum tíma það sem sé í gangi í íslenskri ljóðlist.

„Ragnheiður Lárusdóttir hefur kennt íslensku og ljóðlist um áratugaskeið á framhaldsskólastigi þannig að ég samgleðst henni innilega fyrir frábært handrit og býð hana velkomna í magnaðan hóp fólks sem hefur fengið þessi eftirsóttu verðlaun,“ er haft eftir Degi.

Fyrsta ljóðabókin

Um Ragnheiði segir að 1900 og eitthvað sé fyrsta ljóðabók Ragnheiðar en hún hafi birt stök ljóð í gegnum tíðina, m.a. í Lesbók Morgunblaðsins, á vefritinu Lestrarklefinn og á eigin Facebook síðu.

Ragnheiður kveðst hafa fengist við að skrifa ljóð frá því hún lærði að skrifa og hafi átt sér þann draum lengi að gefa út bók. Hingað til hafi nú þó geymt handritin í skúffunni heima.

„Það er dásamleg og merkileg lífsreynsla þegar draumar rætast. Í dag tek ég við Bókmenntaverðlaunum Tómasar Guðmundssonar fyrir fyrsta handritið sem ég reyni að koma á framfæri og á sama tíma kemur það út á bók. Ég er innilega glöð og þakklát.

Ég átti mér alltaf lífsleyndarmál, ég var ljóðastelpa og skrifaði ljóð í leyni.

Ég jarðaði ljóðin mín, þannig gat ég verið viss um að enginn sæi þau eða læsi. Ég er viss um að það er til fullt af svona krökkum og fullorðnu fólki sem reynir dag hvern að jarða drauma sína, því vil ég segja við alla krakka á öllum aldri: Ekki gera drauma þína að lífsleyndarmáli og ekki jarða drauminn þinn, leyfðu honum að lifa og vaxa annars grefurðu þína eigin gröf,“ segir Ragnheiður.

Ragnheiður er fædd árið 1961, er íslenskukennari við Menntaskólann í Kópavogi og lauk meistaranámi í kennslu listgreina frá Listaháskóla Íslands 2016 auk þess sem hún hefur lokið söngkennaraprófi frá Söngskólanum í Reykjavík.

Umsögn dómnefndar

Í dómnefnd voru þau Sif Sigmarsdóttir, sem var formaður, Börkur Gunnarsson og Eyþór Árnason. Í umsögn nefndarinnar um verðlaunahandritið segir:

„1900 og eitthvað eftir Ragnheiði Lárusdóttur er heillandi uppvaxtarsaga prestsdóttur að vestan, vegferð hennar um torfarnar heiðar jafnt sem lífsins rangala.

Ljóðmælandi dregur upp tærar hversdagsmyndir sem í fyrstu virðast léttvægar; hálfdauðar flugur í gluggakistu kirkjunnar; póstskorturinn sem skellur á þegar ófært er yfir heiðina. En þegar líða tekur á verkið verður lesanda ljóst að það er einmitt í þessum léttvægu stundum sem lífið liggur og örlögin ráðast. Það fellur að og fjarar út, bönd verða til og þau slitna, draumar rætast og vonir bresta, allt yfir kaffibolla, nýveiddum silungi og Andrésblöðum.

1900 og eitthvað er heildstætt verk, falleg saga af uppvexti stúlku í heimi sem er ekki alltaf hennar. Einfaldleikinn er tær og ómengaður. Dregnar eru upp skýrar myndir frá síðustu öld þar sem prestar ferðast á milli fjarða á skíðum til að messa, útvarpið er eina tengingin við umheiminn og fjársjóðurinn sem skipin færa að landi eru eplakassar. Þrátt fyrir erfiðið er dísæt hamingja víða, púðursykur og pönnsur.

1900 og eitthvað er hófstillt verk um stórfengleika hins smáa og áhrifamátt hversdagsleikans.“

Hafa verið veitt frá 1994

Alls bárust 52 óbirt ljóðahandrit í samkeppnina í ár og voru þau send inn undir dulnefni. Aðeins var umslag með réttu nafni verðlaunahöfundar opnað.

Reykjavíkurborg hefur veitt Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar frá árinu 1994 og hafa þau verið veitt fyrir ljóðahandrit eingöngu frá 2004. Reykjavík bókmenntaborg UNESCO hefur umsjón með verðlaununum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×