Glæsimörk í öruggum sigri United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Martial skoraði í þriðja leiknum í röð.
Martial skoraði í þriðja leiknum í röð. vísir/getty

Manchester United vann sinn annan leik í röð í ensku úrvalsdeildinni þegar liðið bar sigurorð af Watford, 3-0, á Old Trafford. Bruno Fernandes skoraði sitt fyrsta mark fyrir United í dag.

Með sigrinum komst United upp í 5. sæti deildarinnar. Watford, sem er án sigurs í síðustu fimm leikjum, er hins vegar í nítjánda og næstneðsta sætinu.

Á 42. mínútu braut Ben Foster, markvörður Watford, á Fernandes innan vítateigs. Portúgalinn tók spyrnuna og skoraði af öryggi. Þetta var hans fyrsta mark fyrir United.

Í upphafi seinni hálfleiks jafnaði Troy Deeney fyrir Watford en markið var dæmt af með hjálp VAR. Craig Dawson handlék boltann í aðdraganda marksins.

Á 58. mínútu kom Anthony Martial United í 2-0 með glæsilegu marki. Hann hefur skorað í þremur leikjum í röð.

Þegar stundarfjórðungur var til leiksloka skoraði Mason Greenwood svo þriðja mark United með skoti í slá og inn eftir sendingu frá Fernandes. Lokatölur 3-0, United í vil.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira