Tíska og hönnun

Mikil vinna á bak við búninga Shakiru og J.Lo

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Það tók mörg hundruð klukkutíma að handlíma kristala og steina á átta búninga fyrir söngkonurnar.
Það tók mörg hundruð klukkutíma að handlíma kristala og steina á átta búninga fyrir söngkonurnar. Samsett

Það tók mörg hundruð klukkutíma að handsauma milljónir kristala og steina á búninga Shakiru og Jennifer Lopez fyrir rúmlega 14 mínútna hálfleikssýningu Ofurskálarinnar (e. Super Bowl). Undirbúningurinn byrjaði í september á síðasta ári. Shakira notaði þrjá mismunandi búninga og Lopez notaði alls fimm. Lopez er fimmtug en Shakira varð 43 ára í gær og hélt upp á afmælið á skemmtistað eftir leikinn en söngkonurnar hafa æft í marga mánuði fyrir atriði sitt. 

Shakira og Jennifer Lopez skiptu samtals átta sinnum um búning á sviðinu í nótt.Getty/Jeff Kravitz

Lopez klæddist Versace búningum en á dögunum var tilkynnt að hún væri andlit vorherferðarinnar þeirra. Lopez fór aldrei út af sviðinu svo búningarnir voru í nokkrum lögum og fækkaði hún þeim á meðan sýningunni stóð. Öll fimm lúkkin voru frá Versace. Á einum tímapunkti klæddist hún tvískiptum fána en hann var gerður með handsaumuðum fjöðrum í bláu, rauðu og hvítu. Swarovski kristalar og steinar voru á öllum búningunum.

Stílistar Lopez, Rob Zangardi og Mariel Haenn, sögðu í viðtali við The Hollywood Reporter að það hafi þurft að útbúa 213 búninga og 143 pör af skóm fyrir Lopez og 130 dansarana sem voru á sviðinu með þeim. Dóttir söngkonunnar á meðal þeirra sem komu á sviðið með henni. Stílistarnir hafa unnið með söngkonunni frá 2011. Það tók alls yfir mörg hundruð klukkustundir að festa þúsundir kristala á búningana og skóna.

Mynd/Versace
Mynd/Versace
Mynd/Versace
Mynd/Versace
Mynd/Versace

Það var hugsað fyrir hverju smáatriði og fékk Tom Bachik það verkefni að gera neglur á Lopez, sem einnig voru skreyttar með Swarovski.

 
 
 
View this post on Instagram

@jlo killed it! #SuperBowl 2020 #nailsbytombachik The @swarovski crystals were the perfect partner to create #jlo’s nail bling

A post shared by (@tombachik) on Feb 2, 2020 at 5:43pm PST

Shakira, afmælisbarn gærdagsins, skipti tvisvar um föt á meðan sýningunni stóð en norski hönnuðurinn Peter Dundas hannaði öll þrjú lúkkin. Hann notaði víst tæplega tvær milljónir Swarovski kristalsteina í fötin. 

 
 
 
View this post on Instagram

A post shared by Peter Dundas (@peter_dundas) on Feb 2, 2020 at 5:19pm PST





 
 
 
View this post on Instagram

A post shared by Peter Dundas (@peter_dundas) on Feb 2, 2020 at 5:19pm PST





 
 
 
View this post on Instagram

A post shared by Peter Dundas (@peter_dundas) on Feb 2, 2020 at 5:24pm PST

The Dan Life gerði stígvélin og sýndi frá gerð þeirra á Instagram. Hann segir að það hafi þurft 30.000 steina á þau og það tók tíu daga að líma þá á.

 
 
 
View this post on Instagram

A post shared by Papelpop (@papelpop) on Feb 2, 2020 at 9:26am PST



Hálfleikssýningu Shakiru og Jennifer Lopez í heild sinni má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.

v

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×