Rashford með tvö mörk í stórsigri United

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rashford skoraði tvö mörk í dag.
Rashford skoraði tvö mörk í dag. vísir/getty

Manchester United vann öruggan sigur á Norwich City, 4-0, þegar liðin mættust á Old Trafford í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Með sigrinum komst United upp í 5. sæti deildarinnar. Norwich er enn á botninum.

Marcus Rashford kom United yfir á 27. mínútu eftir góða sendingu Juans Mata.

Á 52. mínútu fiskaði Brandon Williams vítaspyrnu. Rashford fór á punktinn og skoraði sitt annað mark.

Tveimur mínútum síðar skoraði Anthony Martial með skalla eftir fyrirgjöf frá Mata.

Á 76. mínútu skoraði ungstirnið Mason Greenwood svo fjórða mark United, fimm mínútum eftir að hann kom inn á sem varamaður.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira