Sport

Fowler og Schef­fler efstir en Finau jafnaði sitt eigið met

Anton Ingi Leifsson skrifar
Finau spilaði stórkostlegt golf í gær.
Finau spilaði stórkostlegt golf í gær. vísir/getty

Rickie Fowler og Scottie Scheffler eru jafnir í efsta sætinu á The American Express mótinu sem fer fram í La Quinta í Kaliforníu.

Þeir spiluðu báðir á 65 höggum fyrsta daginn og endurtóku svo leikinn í gærkvöldi er báðir spiluðu á 64 höggu, eða samanlagt á fimmtán höggum undir pari.







Í 3. Sætinu er svo Andrew Landry en hann er einungis höggi á eftir Fowler og Scheffler. Þar á eftir koma Tony Finau (-13) en hann gerði sér lítið fyrir og spilaði á tíu höggum undir pari í dag.

Hann jafnaði sitt met á PGA túrnum með spilamennskunni en hann á best spilamennsku upp á 62 högg á PGA mótum.

Bud Cauley er fimmti á tólf höggum undir pari og svo koma sex kylfingar á ellefu höggum undir pari.







Sýnt verður beint frá mótinu á Golfstöðinni í dag en útsendingin hefst klukkan 21.00.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×