Innlent

Lentu þyrlunni á hól til að bíða af sér verstu snjó­élin

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Mynd af þyrlu gæslunnar í Eyjum í dag.
Mynd af þyrlu gæslunnar í Eyjum í dag. landhelgisgæslan

Áhöfnin á TF-EIR sótti tvo sjúklinga til Vestmannaeyja á þriðja tímanum í dag, en vegna veðurs reyndist ekki unnt að senda sjúkraflugvél til Eyja.

Að því er fram kemur í Facebook-færslu Landhelgisgæslunnar lenti TF-EIR á flugvellinum í Vestmannaeyjum þar sem tveir sjúklingar fóru um borð.

Á bakaleiðinni var skyggni hins vegar orðið slæmt og þegar komið var Lækjarbotnum í nágrenni Hólmsár var ákveðið að lenda þyrlunni á hól þar sem áhöfnin beið af sér verstu snjóélin.

Eftir tíu mínútna bið var svo haldið á Reykjavíkurflugvöll og sjúklingarnir voru fluttir þaðan í sjúkrabíl á Landspítalann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×